132. löggjafarþing — 58. fundur,  2. feb. 2006.

Samningurinn um líffræðilegan fjölbreytileika.

[10:47]
Hlusta

Hlynur Hallsson (Vg):

Frú forseti. Þetta er mikilvæg umræða sem hér fer fram, og ber að þakka hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur fyrir að vekja athygli á málinu. Skýrsla Ríkisendurskoðunar er þungur áfellisdómur yfir umhverfisráðherrum síðustu 12 ára. Allt frá árinu 1994 hefur allt of lítið verið gert til þess að koma þessum málum áfram. Það eru þrír umhverfisráðherrar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem hafa klikkað í þessu máli. Ég lýsi eftir fulltrúum Framsóknarflokksins í þessari umræðu, er virkilega enginn framsóknarmaður í salnum og ætla þeir ekkert að taka þátt í þessari umræðu? Hvar er hv. þm. Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra? Ég mundi gjarnan vilja heyra álit hennar á þessum málum.

Fögur orð og fyrirheit koma hér enn og aftur upp, og hæstv. umhverfisráðherra leggur þau hér fram. Hún segir að hún reikni með aðgerðaáætlun seinna á þessu ári. Það er bara ekki nóg, frú forseti. Nú verðum við að fara að gera eitthvað í málunum. Það kemur hérna fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar mjög skýrt og skorinort að allt of lítið hefur verið gert í þeim.

Hér stendur, með leyfi forseta:

„Þá ber að hafa í huga að a.m.k. á meðan ónógar rannsóknir hafa farið fram kann að vera ástæða til að lögfesta varúðarsjónarmið gagnvart nýtingu náttúruauðlinda, en slík varúðarregla finnst ekki í íslenskri löggjöf.“

Hún finnst ekki í íslenskri löggjöf. Er það eðlilegt, hæstv. umhverfisráðherra?

Einnig kemur fram að engin stofnun eða aðili hafi það sem meginhlutverk að gæta sérstakra hagsmuna umhverfis og náttúru, og það er á tímum sem umhverfisverndarsamtök eru hunsuð af ríkisstjórn Íslands. Við það má ekki búa öllu lengur, frú forseti.