Samningurinn um líffræðilegan fjölbreytileika.
Frú forseti. Hv. þingmenn hafa gert varúðarsjónarmið að umtalsefni. Við höldum þau að sjálfsögðu í heiðri, Íslendingar, og við gerum það á fjölmörgum sviðum. Varúðarsjónarmið eru t.d. höfð til hliðsjónar við takmörkun á afla nytjastofna og þessi sjónarmið liggja líka til grundvallar þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi við að draga úr mengun hafsins og útstreymi gróðurhúsalofttegunda.
Við Íslendingar stöndum líka mjög vel hvað snertir löggjöf og framkvæmd sjálfbærrar nýtingar lífríkisins. Það er auðvitað hægt að segja að ekki sé víða í lagatexta vísað beint til samningsins um líffræðilega fjölbreytni, enda er fátítt að slíkt sé gert. Augljóst er þó að ákvæði hans eru höfð til hliðsjónar. Þetta gildir m.a. um lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum frá 1994 og lög um umgengni um nytjastofna sjávar frá 1996. Auðvitað skiptir alltaf meginmáli að lögunum sé framfylgt og markmiðum þeirra náð.
Sjálfbær nýting hefur líka verið leiðarljós umhverfisráðuneytisins varðandi þá nýtingu lífríkisins sem undir það heyrir. Í því sambandi má nefna stjórn rjúpnaveiða með það að markmiði að veiðarnar séu sjálfbærar. Þar hafa varúðarsjónarmiðin verið höfð að leiðarljósi. Ég leyfi mér að fullyrða að fáar þjóðir taki sjálfbæra nýtingu lífríkisins jafnalvarlega og við Íslendingar. Ég hvet umhverfisnefnd til að taka skýrsluna til gagngerrar skoðunar í þingnefndinni og ég tek sérstaklega fram að ég lít ekki á skýrslu Ríkisendurskoðunar sem neinn áfellisdóm yfir íslenskum stjórnvöldum. Hún kemur hins vegar að mjög góðu gagni við stefnumótun í starfi umhverfisráðuneytisins og þær tillögur sem þar er að finna. (Forseti hringir.)
Ég vil segja það sem ég hef sagt hér áður, og er mest um vert, að það er unnið á vegum íslenskra (Forseti hringir.) stjórnvalda að markmiðum samningsins með mjög markvissum hætti. Sú vinna mun líta dagsins ljós í (Forseti hringir.) lok þessa árs.