Stytting náms til stúdentsprófs.
Herra forseti. Auðvitað má fagna því samkomulagi sem gert hefur verið milli Kennarasambands Íslands og hæstv. menntamálaráðherra í dag. Það gefur okkur a.m.k. vonir um það að þeim hræðilegu mistökum sem hæstv. menntamálaráðherra var nærri því búin að leiða okkur inn í verði afstýrt. Ég treysti því að Kennarasamband Íslands hafi alla kennara sameinaða að baki sér í þeirri vinnu sem nú er fram undan. Það þarf að nýta tímann vel í þeirri vinnu ef ekki á að fara illa.
Hæstv. menntamálaráðherra stagast á því að hún hafi kynnt málið í skólunum frá fyrsta degi, reyndar ekki bara hún heldur forverar hennar líka. Það er auðvitað rétt, hæstv. ráðherra fór sjálf í alla framhaldsskólana á landinu til að kynna málið. En hlustaði hún á þau svör og þau viðbrögð sem hún fékk? Ó, nei. Hún hélt sínu striki ótrauð en hún ætlar að hlusta núna. Við skulum fagna því og treysta því að sú hlustun verði skapandi og leiði til þess að út úr þessari vinnu komi betra skólakerfi, betra nám fyrir ungmenni á Íslandi. Það verðum við að reyna að tryggja.
Nú langar mig að segja við hæstv. ráðherra: Ég vil að hún láti af þessari áherslu á ævitekjurnar. Ég vil að hún gleymi því að það var Verslunarmannafélag Reykjavíkur sem vann fyrstu skýrslur um þetta mál til þess að fá ungmenni fyrr út á vinnumarkað af því að það væri svo hagkvæmt fyrir samfélagið, striki nú hæstv. menntamálaráðherra yfir þennan fókus og fari að einbeita sér að því að skoða hvernig við búum til hæfa og vel menntaða einstaklinga í samfélaginu. Íslensk ungmenni eru vel menntuð. Það hefur verið sannreynt, þegar þau sækja um skóla í útlöndum fá þau forgang á nemendur frá nágrannalöndunum. Þau ljúka námi á sama tíma og jafnaldrar þeirra í útlöndum þó svo að þeirra skólaganga sé í einhverju öðru módeli en skólaganga krakka í Danmörku. Og hlusti nú hæstv. ráðherra á það sem Danir eru að gera. (Forseti hringir.) Þeir eru að lengja grunnskólann sinn um eitt ár.