132. löggjafarþing — 58. fundur,  2. feb. 2006.

Stytting náms til stúdentsprófs.

[15:13]
Hlusta

Dagný Jónsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir að taka málið hér upp. Í dag er einmitt svo sannarlega ástæða til að vekja athygli á stöðu mála. Það er ástæða til að óska hæstv. menntamálaráðherra til hamingju með það samkomulag sem hún kynnti fyrr í dag. Einnig óska ég sérstaklega Kennarasambandinu til hamingju með þennan árangur en það er ekki síst fyrir tilstuðlan þess að þetta tókst.

Það er afar ánægjulegt fyrir okkur sem höfum fylgst með málinu, og ég verð að viðurkenna að hafa haft af því nokkrar áhyggjur framan af, að sjá í hvaða farveg það er nú komið. Mér þykir afar heillavænlegt að vita til þess að öll fagfélög innan Kennarasambandsins standi að þeirri vinnu af heilum hug sem fram undan er ásamt stjórnvöldum. Við erum að horfa til allra skólastiga sem tengjast málinu, þ.e. leikskólans, grunnskólans og framhaldsskólans.

Nú höfum við lista upp á 10 skref til sóknar sem þessir aðilar ætla að vinna samhentir að. Ég hef haft áhyggjur af a.m.k. þremur atriðum, og það er sérstaklega tekið á þeim í þessum lista, (Forseti hringir.) þ.e. eflingu kennaramenntunar …

(Forseti (BÁ): Forseti bendir ræðumanni á að klukkan í borðinu er eitthvað biluð. Tíminn líður samt.)

Tíminn líður samt. Þá ætla ég að ljúka máli mínu, þetta var einkennilega ríflegt. Ég fagna þessu og vil ítreka þessi atriði, þ.e. eflingu kennaramenntunar, eflingu verk- og starfsnáms og það að stuðla eigi að því að draga úr brottfalli. Ég fagna þessu og (Forseti hringir.) hlakka til að fylgjast með framhaldinu sem er í góðum höndum, virðulegi forseti.