132. löggjafarþing — 58. fundur,  2. feb. 2006.

Æskulýðslög.

434. mál
[18:44]
Hlusta

Ásta Möller (S):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að frumvarp til æskulýðslaga skuli vera komið til 1. umr. í dag. Eins og kom fram hjá hæstv. menntamálaráðherra í ræðu hans hef ég á undanförnum árum verið ráðuneytinu innan handar við að skoða þennan málaflokk og átti þátt í að undirbúa þetta frumvarp, m.a. sem formaður nefndar sem gerði úttekt á stöðu félags- og tómstundamála ungs fólks á Íslandi og síðan formaður nefndar sem fékk það hlutverk að gera drög að því frumvarpi sem nú er hingað komið fram á hinu háa Alþingi.

Núgildandi æskulýðslög eru frá árinu 1970 og eru því um 36 ára gömul. Megintilgangur núgildandi laga er að setja reglur um opinberan stuðning við æskulýðsstarfsemi. Jafnframt kveða þau á um skipulag æskulýðsmála. Mikil þróun hefur átt sér stað í þessum málaflokki frá þeim tíma sem lögin voru sett og var tímabært að endurskoða þau. Á undanförnum áratugum hafa nokkrar tilraunir verið gerðar til að endurskoða þessi lög en það er fyrst nú sem slíkt frumvarp er lagt fram á hinu háa Alþingi.

Aðkomu mína að þessu frumvarpi má fyrst rekja til haustsins 2002 er þáverandi hæstv. menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, skipaði mig sem formann nefndar sem fékk það hlutverk að gera úttekt á stöðu félags- og tómstundamála ungs fólks á Íslandi. Í nefndinni sátu auk mín frammámenn og forustufólk í æskulýðsstarfi í landinu. Það voru Eiríkur Björgvinsson, áður íþrótta- og tómstundafulltrúi á Akureyri og nú bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, Helga Guðjónsdóttir, aðstoðarskólameistari og varaformaður Ungmennasambands Íslands, Karl Frímannsson, skólastjóri Hrafnagilsskóla, Margrét Tómasdóttir, núverandi skátahöfðingi, dr. Þórólfur Þórlindsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og Vanda Sigurgeirsdóttir, nú lektor í tómstundafræðum við Kennaraháskóla Íslands. Starfsmaður nefndarinnar var dr. Jón Gunnar Bernburg félagsfræðingur. Einnig starfaði Erlendur Kristjánsson, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, með nefndinni. Ég vil þakka þessu ágæta fólki ánægjulegt samstarf í þeirri nefnd sem ég var nú að greina frá.

Nefndinni var m.a. falið að skoða hvernig efla mætti þátttöku ungs fólks í félags- og tómstundastarfi. Hvernig efla mætti menntun og þjálfun leiðbeinenda og félagsforustufólks og skoða leiðir til að auka hina óformlegu menntun í félags- og tómstundastarfi og tengja hana skólakerfinu og atvinnulífinu. Að lokum var nefndinni falið að koma með tillögur um hvernig mögulegt væri að efla æskulýðsrannsóknir hér á landi og gera tillögur um þau atriði sem koma ættu til skoðunar við endurskoðun á æskulýðslögum.

Nefndin setti sér að hafa sem best samráð við alla aðila sem koma að félags- og tómstundamálum ungs fólks og fá sem besta yfirsýn yfir málaflokkinn. Í því skyni hitti nefndin yfir 40 aðila, svo sem frá skátum, ungmennafélögum, ungliðahreyfingum stjórnmálaflokka, æskulýðsstarfi kirkjudeilda, Rauða krossinum, ungliðadeild Samtaka fatlaðra, Samtökum ungmennaskipta, Samtökum félagsmiðstöðva á Íslandi, auk aðila frá sveitarfélögum, Samtökum atvinnulífsins og Æskulýðsráði ríkisins svo fátt eitt sé nefnt.

Ég dreg þetta fram til að leggja áherslu á að niðurstaða nefndarinnar var kynnt víða og hefur hún notið víðtæks stuðnings þessara samtaka. Ég hef jafnframt rökstuddan grun um, og reyndar nokkra vissu, að mörg þeirra hafi byggt á skýrslunni við mótun framtíðarsýnar og eigin starfs enda áttu þau hlutdeild í niðurstöðu hennar. Í skýrslu nefndarinnar segir m.a. eftirfarandi um gildi æskulýðsstarfs, með leyfi forseta:

„Þátttaka ungs fólks í æskulýðsstarfi er einn af hornsteinum uppbyggilegrar þátttöku þeirra í samfélaginu. Fyrst má nefna uppeldislegt gildi félags- og tómstundastarfs en þátttaka í starfi af þessu tagi kennir ungu fólki að vinna saman og taka ákvarðanir í samstarfi við aðra. Í félags- og tómstundastarfsemi fer jafnframt fram þjálfun í framkomu á fjöldavettvangi og í tjáningu skoðana sem er einstaklingnum gott veganesi í lífi og starfi. Að sama skapi má segja að áhersla félags- og tómstundasamtaka á sjálfboðavinnu kenni ungu fólki ósérhlífni í þágu hópsins. Skipulagt félagsstarf eykur mannauð ungs fólks og virðist einu gilda um hvað starfið snýst.

Í öðru lagi hefur félags- og tómstundastarf forvarnagildi. Á undanförnum árum hafa vandamál meðal ungmenna vakið fólk til umhugsunar um þær áhættur sem fylgja unglingsárunum í opnu nútímasamfélagi. Ofbeldi, einelti, sjálfsvíg og ofneysla vímugjafa er meðal þeirra vandamál sem iðulega ber á góma í þessu sambandi. Niðurstöður félagsfræðilegra rannsókna, bæði innlendra og erlendra, benda til þess að ein vænleg leið til að stemma stigu við frávikshegðun ungs fólks sé að efla þátttöku þess í félags- og tómstundastarfi. Rannsóknir benda til að skipulagt félagsstarf skapi aukna festu í lífi ungmenna og umgjörð utan um jafningjasamskiptin og jafningjamenninguna. Ungt fólk sem tekur þátt í markmiðsbundnu félagsstarfi er líklegra til að líta á sjálft sig sem ábyrga þátttakendur í samfélaginu. Þá gefa rannsóknir sterka vísbendingu um að ungt fólk sem tekur þátt í skipulögðu félags- og tómstundastarfi hafi minni tíma og tækifæri til að falla fyrir áhættusömum freistingum.“

Við Íslendingar höfum verið afar gæfusamir að fyrir liggja margar og öflugar æskulýðsrannsóknir sem frjáls félagasamtök og sveitarfélög hafa getað litið til við skipulagningu og stefnumótun í æskulýðsstarfi. Margir vísindamenn hafa lagt hönd á plóginn en ég tel þó að rannsóknir sem gerðar hafa verið að tilhlutan menntamálaráðuneytisins frá árinu 1992, undir heitinu „Ungt fólk“ séu einna þekktastar og viðamestar. Þessar rannsóknir þykja einstakar, enda hafa þær náð til allra grunnskóla- og framhaldsskólanema í tilteknum árgöngum sem auka gildi þeirra. Vekja þær athygli langt út fyrir landsteinana.

Virðulegi forseti. Umfang æskulýðsstarfs í landinu er verulegt. Í skýrslunni kemur fram að íslenskar rannsóknir bendi til að um 64% nemenda í 9.–10. bekk teljist vera virkir þátttakendur í skipulegu félags- og tómstundastarfi af einhverjum toga og talan fer upp í 75% þegar listnám er tekið með í myndina. Jafnframt eru um 46% framhaldsskólanema í slíku starfi og þegar listnámi er bætt á listann, þ.e. tónlist, leiklist og myndlistarnám, er hlutfallið um 60%. Þessar tölur hafa ekki farið hátt en benda til mikilvægis þess starfs sem fram fer í landinu til stuðnings ungu fólki til aukins þroska.

Æskulýðsstarf fer fram á vegum frjálsra félagasamtaka, kirkjudeilda og sveitarfélaga. Æskulýðsstarf á vegum frjálsra félagasamtaka byggist fyrst og fremst á eigin fjármögnun og sjálfboðastarfi. Þau njóta ákveðins fjárhagslegs stuðnings stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, og hefur slíkur stuðningur farið vaxandi í seinni tíð. Þegar bornir eru saman ársreikningar frjálsra félagasamtaka og stuðningur ríkisins til þeirra má gróflega áætla að stuðningur ríkisins sé um 10% af heildarkostnaði. Þannig hefur hver króna sem ríkið leggur til slíkrar starfsemi tífaldast. Þetta er eðli sjálfboðasamtaka og hefur gildi í sjálfu sér en gerir jafnframt kröfur til stjórnvalda að hlúa að slíkri starfsemi. Það er þjóðhagslega hagkvæmt, hvort heldur litið er til fjárhagslegra eða félagslegra þátta, beinna eða óbeinna áhrifa af slíku starfi á samfélagið allt. Það þarf ekki að hafa mörg orð um mikilvægi skátastarfs, skákstarfs, kristilegs starfs og stjórnmálalegra starfa æskufólks á þroska þeirra og eflingu á möguleikum þeirra á virkri þátttöku í samfélaginu eins og ég kom að hér á undan.

Í skýrslu nefndarinnar um úttekt á stöðu félags- og tómstundamála á Íslandi er bent á að stuðningur stjórnvalda við frjáls félagasamtök er ómarkviss og tilviljanakenndur. Öruggur stuðningur stjórnvalda við frjáls félagasamtök skapar festu í starfsemi þeirra, m.a. varðandi langtímaskipulagningu á starfseminni. Í ljósi þess að launaður starfsmaður er oft grundvöllur árangursríks sjálfboðastarfs og að mikill tími og orka fer í fjáröflun er mikilvægt að treysta ákveðinn fjárhagslegan grundvöll slíkra samtaka. Þar getur öruggur, opinber stuðningur munað öllu. Framlag ríkisins til æskulýðsmála í fjárlögum ársins 2005 var um 130 millj. kr. og var þeim varið til stuðnings Landssamtaka æskulýðsfélaga og verkefna á sviði félags- og æskulýðsmála. Á árinu 2001 voru framlög sveitarfélaga til félags- og tómstundastarfs utan íþróttastarfs um 1 milljarður kr. en stórum hluta þess var varið til æskulýðsstarfs á vegum sveitarfélaga sem er haldið uppi af launuðum starfsmönnum. Með hliðsjón af þeirri þumalputtareglu að hver króna sem opinberir aðilar leggja til sjálfboðasamtaka a.m.k. tífaldist í meðförum þeirra, má leiða líkur að því að fjárhagslegt umfang frjálsra félagasamtaka og sveitarfélaga til æskulýðsstarfs sé álíka mikið á ári hverju, eða um 1 milljarður á ári hjá hvorum um sig. Þá er ekki metið til fjár ólaunað sjálfboðastarf á vegum frjálsra félagasamtaka. Því er ekki ofsögum sagt að opinbert fjármagn til frjálsra félagasamtaka margfaldist í meðförum þeirra.

Mörg sveitarfélög leggja mikið fjármagn í skipulegt félags- og tómstundastarf sem er borið uppi af launuðum starfsmönnum þeirra. Mörgum sveitarstjórnarmönnum er ljóst að virkt æskulýðsstarf skiptir íbúana máli og getur ráðið miklu varðandi val fólks á búsetu. Þau sjónarmið komu fram hjá mörgum forustumönnum æskulýðssamtaka að starfsemi sveitarfélaga þrengi að vissu marki að starfssemi frjálsra félagasamtaka, enda eru þau í samkeppni um að fá ungmenni til liðs við sig. Sömu aðilar lögðu ríka áherslu á aukið samstarf sveitarfélaga og frjálsra félagasamtaka að æskulýðsmálum, t.d. með þeim hætti að sveitarfélög geri þjónustusamninga við þau um að halda uppi tiltekinni starfsemi. Með því móti hefðu sveitarfélög jafnframt möguleika á að nýta fjármagn til málaflokksins mun betur.

Virðulegi forseti. Haustið 2003 skipaði þáverandi menntamálaráðherra nefnd sem fékk það hlutverk að til að semja drög að nýrri löggjöf um æskulýðsmál. Ég var formaður þeirrar nefndar en auk mín áttu sæti í henni Erlendur Kristjánsson deildarstjóri, Karitas H. Gunnarsdóttir skrifstofustjóri, Stefán E. Bjarkason, framkvæmdastjóri menningar-, íþrótta- og tómstundasviðs Reykjanesbæjar, og Ólafur Jóhannsson sóknarprestur, en hann er jafnframt formaður KFUM og KFUK og formaður Prestafélags Íslands.

Það frumvarp til æskulýðslaga sem nú er til umfjöllunar er sett fram með allt öðrum hætti en núgildandi lög, sem sést einna helst með því að bera saman tilgang núgildandi æskulýðslaga við megintilgang þess frumvarps til æskulýðslaga sem við fjöllum um nú. Tilgangur núgildandi laga er eins og áður sagði að kveða á um opinberan stuðning til málaflokksins. Megintilgangur frumvarpsins er hins vegar að skapa umhverfi til að styðja börn og ungmenni til þátttöku í æskulýðsstarfi. Æskulýðsstarf er skilgreint og kveðið er á um þann ramma sem slíku starfi skuli sett. Segja má að meginhugsun æskulýðsfrumvarpsins byggi á þremur meginstoðum:

Í fyrsta lagi að æskulýðsstarf hafi það að markmiði að byggja upp mannauð og lýðræðisvitund þátttakenda, enda miðar það að því að slíkt starf hafi félagslegt gildi, forvarnagildi og uppeldis- og menntunarlegt gildi. Þannig er lögð áhersla á að þetta starf sé skipulagt.

Í öðru lagi að velferð barna og ungmenna skuli höfð að leiðarljósi í öllu æskulýðsstarfi.

Í þriðja lagi að börn og ungmenni skuli hvött til frumkvæðis og virkrar þátttöku.

Nefndin sem samdi frumvarpið var mjög meðvituð um að gæta þarf sérstaklega að velferð barna og ungmenna sem eru í starfi utan heimilis án forráðamanna, m.a. þegar þau eru að heiman næturlangt. Þannig ræddi nefndin ítarlega um ábyrgð skipuleggjenda æskulýðsstarfs til að vernda börn og ungmenni gagnvart aðstæðum sem þau ráða ekki við, eins og t.d. kynferðislegri áreitni og einelti og að dreifiaðilar ávana- og fíkniefna komist ekki að börnum og ungmennum til að halda að þeim vímuefnum. Í ljósi þess lagði nefndin til að í 10. gr. frumvarpsins yrðu settar fram kröfur til aðila sem eru með börnum og ungmennum í æskulýðsstarfi. Þannig eru samkvæmt frumvarpinu gerðar kröfur um þjálfun, menntun, þekkingu og reynslu þeirra sem starfa með eða hafa umsjón með börnum og ungmennum í æskulýðsstarfi. Ekki þótti þó við hæfi að setja fram tiltekin menntunarskilyrði en vísað er til ábyrgðaraðila slíks starfs að setja lágmarksskilyrði og sjá til þess að þau séu uppfyllt. Þannig er ekki heimilt að gera aðila ábyrgan fyrir hópi barna eða ungmenna í æskulýðsstarfi nema hann sé metinn hæfur til þess af skipulagsaðila og treyst til að takast á við vanda sem kynni að koma upp í slíku starfi.

Þá er í frumvarpinu ákvæði þess efnis að þeir sem eru með börnum og ungmennum í æskulýðsstarfi eða í ferðum því tengt, skuli óheimilt að neyta áfengis og annarra vímuefna. Er þetta ákvæði sett inn að gefnu tilefni.

Þá er mikilvægt að nefna að í 3. mgr. 10. gr. er ákvæði þess efnis að óheimilt sé að ráða til starfa með börnum og ungmennum í æskulýðsstarfi einstaklinga sem hlotið hafa refsidóm vegna brota á XXII. kafla almennra hegningarlaga um kynferðisbrot og vegna brota á ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni. Fyrra atriðið hefur hliðstæðu í 36. gr. barnaverndarlaga sem kveður á um að óheimilt sé að ráða til starfa hjá barnaverndaryfirvöldum, heimilum eða stofnunum samkvæmt þeim lögum, aðila sem fengið hafa dóm vegna kynferðisafbrota. Varla er þörf á að rökstyðja mikilvægi þessa ákvæðis í ljósi umræðu síðustu missira um barnaníðinga sem sækjast eftir að starfa með börnum í skipulegu æskulýðsstarfi. Seinni liðurinn, um að óheimilt sé að ráða þá sem hafa fengið dóm vegna ávana- og fíkniefnabrota, kemur til af því að þeir sem standa fyrir æskulýðsstarfi tjáðu nefndinni að borið hefði á að slíkir aðilar sækist eftir að komast í tengsl við börn og ungmenni gegnum skipulagt æskulýðsstarf til að dreifa slíkum efnum. Hér verður að hafa velferð barna að leiðarljósi og þau verða að fá að njóta vafans í þessum efnum.

Sú áhersla að börn og ungmenni skuli hvött til frumkvæðis og virkrar þátttöku á sér m.a. stað í 11. gr. frumvarpsins, um að sveitarstjórnir skuli hlutast til um að stofnuð séu ungmennaráð. Slík ráð hafa rutt sér rúms meðal framsækinna sveitarfélaga. Hér er ekki vegið að sjálfsforræði sveitarfélaga en í ljósi mikils æskulýðsstarfs á vegum þeirra var talið mikilvægt að lögin settu ákveðinn ramma utan um slíka starfsemi. Náið samráð var haft við forsvarsmenn Sambands íslenskra sveitarfélaga um útfærslu á þessari grein frumvarpsins.

Virðulegi forseti. Önnur nýmæli í frumvarpinu varða æskulýðssjóð, en nefndin sem gerði úttekt á stöðu félags- og tómstundamála ungs fólks gerði það að tillögu sinni að slíkur sjóður yrði stofnaður. Núverandi hæstv. menntamálaráðherra setti slíkan sjóð á laggirnar með reglugerð en með þessu frumvarpi er lagt til að hann fái lagastoð. Þessi sjóður hefur þegar sannað gildi sitt með að styðja mikilvæg verkefni á vegum æskulýðssamtaka. Þá er kveðið á um í 12. gr. frumvarpsins að menntamálaráðherra stuðli að því að fram fari reglubundnar æskulýðsrannsóknir sem lagðar verði til grundvallar stefnumótun í æskulýðsmálum. Þetta atriði er mjög mikilvægt og er ábyrgðin nú færð í hendur menntamálaráðherra en var áður í höndum æskulýðsráðs. Öðrum atriðum frumvarpsins hefur hæstv. menntamálaráðherra gert ágæt skil. Ég hef orðið vör við mikla eftirvæntingu og ánægju hjá æskulýðssamtökum með að þetta frumvarp skuli vera komið til umræðu í hinu háa Alþingi. Það sást m.a. í pósti frá Samtökum félagsmiðstöðva, Samfés, sem barst til þingmanna nú í vikunni. Sjálf fagna ég því sérstaklega að það skuli vera komið fram og ég vona að það fái skjóta afgreiðslu fyrir vorið.