132. löggjafarþing — 58. fundur,  2. feb. 2006.

Æskulýðslög.

434. mál
[19:01]
Hlusta

Valdimar L. Friðriksson (Sf):

Frú forseti. Eins og allir vita er starfsemi æskulýðsfélaga á Íslandi öflug og því löngu tímabært að endurskoða lög um æskulýðsmál frá árinu 1970. Eins og komið hefur fram byggist endurskoðun laganna á tillögum sem nefnd skilaði af sér í maí 2003 undir heitinu Úttekt á stöðu félags- og tómstundamála ungs fólks á Íslandi. Skýrsla þessi rennir stoðum undir þá staðreynd að í landinu er margþætt æskulýðsstarf og að oft tengist það íþróttastarfi. Ungmennafélögin sinntu stórum hluta starfsins og gera að sjálfsögðu enn en frá því að Æskulýðsráð Reykjavíkur var stofnað árið 1956 má segja að félagsmiðstöðvar hafi tekið yfir stóran hluta af félagsstarfinu í þéttbýli. Félagsmiðstöðvar á Íslandi eru orðnar um 90 og í desember urðu samtök þeirra, Samfés, 20 ára. Sökum stærðarinnar og hinnar miklu ábyrgðar sem þessi samtök hafa í lífi ungs fólks er nauðsynlegt að hlusta á rödd þeirra. Ég geri ráð fyrir að þau verði höfð til samráðs í framtíðinni og eigi jafnframt sæti í Æskulýðsráði, sem getið er um í 5. gr. lagafrumvarpsins.

Okkur þingmönnum hefur borist bréf frá Samfés vegna þessa lagafrumvarps. Ég vil fá að lesa aðeins upp úr því. Þar segir m.a. að samtökin gleðjist við yfir því að endurskoðun þessara gömlu laga sé loksins komin á dagskrá. Þar segir einnig, með leyfi forseta:

„Eins þykir okkur mikilvægt að rödd þeirra sem starfa að æskulýðsmálum fái að heyrast í tengslum við endurskoðun laganna og tekið verði mið af þeim athugasemdum sem fram kunna að koma.“

Í ályktun sem samþykkt var á 20 ára afmæli samtakanna 9. desember í fyrra segir, með leyfi forseta:

„Þátttakendur á málfundi Samfés um frítíma árið 2025 vilja leggja áherslu á eftirfarandi atriði:

1. Að lög um æskulýðsmál, nr. 24/1970, verði tekin til gagngerrar endurskoðunar í samstarfi við fagfólk á sviði frítímans og skapaður verði lagarammi sem styður við faglegt frítímastarf á Íslandi.

2. Að sveitarstjórnarmenn setji málefni frítímans i öndvegi í sveitarstjórnarkosningunum 2006.

3. Fjárhagslegur stuðningur hins opinbera við æskulýðs- og frítímastarf verði aukinn.

4. Fagmennska og menntun á sviði frítímans hljóti þá viðurkenningu sem hún á skilið, bæði hvað varðar fagkröfur, í starfi sveitarfélaga sem og í kjaramálum.“

Ég held að við hljótum að vera þessari ályktun sammála í öllum tilfellum. Ég á ekki von á öðru en að leitað verði til þessara samtaka varðandi meðhöndlun frumvarpsins í menntamálanefnd.

Varðandi æskulýðsstarfið vil ég minna á nokkra aðila sem mega alls ekki gleymast í umræðunni sem ástæða er til að óska eftir að nefndin hafi fullt samráð við. Það er t.d. ungmennadeild Blindrafélagsins, ungliðastarf fatlaðra, Ný-Ung, ungliðahreyfing Sjálfsbjargar og Puttalingar, ungliðadeild Félags heyrnarlausra. Þetta eru félög sem ekki má gleyma og skal þar hafa í heiðri kjörorð öryrkja: „Ekkert um okkur án okkar“.

Eins og fram kemur í athugasemdum með frumvarpinu hafa rannsóknir ítrekað sýnt fram á að þátttaka ungs fólks í æskulýðsstarfi hefur mikið forvarnar- og uppeldislegt gildi. Þátttaka í íþrótta- og æskulýðsstarfi minnkar t.d. líkur á vanlíðan ungmenna og minnkar auk þess líkur á vímuefnaneyslu og andfélagslegri hegðun, eins og komið hefur fram. Því minna sem ungmenni taka þátt í starfi íþrótta- og æskulýðsfélaga, því meiri líkur eru á einelti, neyslu vímuefna, vanlíðan og jafnvel sjálfsvígum. Meðal annars þess vegna, frú forseti, er rétt að árétta að við höfum þýðingarmikið mál í höndunum, sérstaklega eins og þjóðfélagið er í dag, í þessum mikla hraða. Sótt er að unglingum úr öllum áttum, svo ekki sé talað um þá staðreynd að ungmenni eru, eins og oft hefur komið fram, farin að fitna vegna hreyfingarleysis.

Í umsögn fjármálaráðuneytisins um frumvarpið segir, með leyfi forseta:

„Samkvæmt 3. gr. frumvarpsins er lagt til að ríkissjóður leggi starfsemi landssamtaka æskulýðsfélaga til fé eftir ákvörðun Alþingis í fjárlögum. Fjármálaráðuneytið telur að tillagan feli ekki í sér skuldbindingar um fjárveitingar og hafi því ekki áhrif á útgjöld ríkissjóðs.“

Er það rétt mat hjá ráðuneytinu, að þessi nýju lög muni ekki á neinn hátt hækka útgjöld ríkissjóðs? Ég hélt að 3. gr., 6. gr. og jafnvel 7. gr. mundu leiða af sér aukin útgjöld, krefðust aukins fjárhagsstuðnings til æskulýðsfélaga frá ríkisvaldinu. Sé svo ekki gæti það verið ákveðinn mínus fyrir þetta frumvarp. Jafnframt tel ég að í 3. og 11. gr. sé opnað fyrir möguleika til að sveitarfélög veiti æskulýðsfélögum meiri stuðning og hærri fjárveitingar en hingað til.

Í athugasemdum með frumvarpinu og í umræðunni í dag hefur starfsemi æskulýðsfélaga verið lofuð. Það er vel en við verðum að átta okkur á því að sjálfboðaliðunum fer fækkandi. Á móti kemur að kröfur hafa aukist, m.a. um menntun, kröfur til leiðbeinenda og þjálfara. Sem betur fer er meiri menntun í boði en áður. Því fylgir hins vegar aukinn kostnaður og auknar kröfur á æskulýðsfélögin leiða oft til þess að þau verða að ráða sér sérstaka starfsmenn. Því fylgja að sjálfsögðu útgjöld en sem betur fer verður starf þeirra yfirleitt betra. Ég tel að í þessu sambandi þurfi menntamálanefnd að skoða sérstaklega 3. gr., 6. gr. og 11. gr. og huga að því hvort aukið fjármagn þarf til æskulýðsfélaga.

Oft er vitnað í tölur um styrki, annars vegar frá ríki og hins vegar frá sveitarfélögum. En þær eru því miður oft villandi. Það ber að taka skýrt fram að húsnæði sem æskulýðs- og íþróttafélög fá frá hendi sveitarfélaga að láni er yfirleitt alltaf reiknað sem útgjöld hjá sveitarfélaginu. Þar getur verið um mjög háar tölur að ræða. Í athugasemdum með frumvarpinu varðandi skýrsluna er hv. þm. Ásta Möller las upp úr áðan segir í athugasemdum með frumvarpinu:

„Í skýrslunni kemur fram að framlög sveitarfélaga til æskulýðs- og íþróttamála voru um 6 milljarðar kr. árið 2001.“

Jafnframt segir:

„Í þessum tölum er um að ræða heildarkostnað bæði til bygginga mannvirkja, reksturs þeirra og innra starfs hjá sveitarfélögunum.“

Þessar tölur eru villandi. Yfirleitt lána sveitarfélögin íþrótta- og æskulýðsfélögum húsnæði en reikna leigukostnað á móti og gefa upp sem styrk til íþrótta- og æskulýðsstarfs. Ég set spurningarmerki við það.

Varðandi æskulýðsmál og stuðning frá ríkisvaldinu er í fjárlagafrumvarpinu 2006 einungis reiknað með 162 millj. til þess. Maður veltir oft fyrir sér þegar maður fer í gegnum fjárlögin hver forgangsröðin er, kannski sérstaklega hjá menntamálaráðuneytinu. Mig langar aðeins varðandi það dæmi að nefna að Íslenska óperan er á árinu 2006 með 175 millj. kr., Íslenska óperan ein. Áætlað er að hún fái meiri fjárveitingu en öll æskulýðsmál á vegum ríkisvaldsins. Þarna finnst mér skjóta skökku við. Það væri hægt að tína fleiri dæmi en ég vildi fá að treysta á að með endurskoðuðum æskulýðslögum komi aukið fé til æskulýðsfélaga.

Í umræddri skýrslu segir jafnframt, með leyfi forseta:

„Félags- og tómstundasamtök afla fjármagns með ýmsum hætti. Stuðningur frá sveitarfélögum og ríki er mikilvægur þáttur í fjármögnun flestra félags- og tómstundasamtaka, þótt slíkur stuðningur sé yfirleitt aðeins hluti af fjármögnun starfseminnar. Ársreikningar félags- og tómstundasamtaka hérlendis sýna að hlutur ríkis og sveitarfélaga í fjármögnun samtaka er þó afar misjafn, allt frá því að vera enginn upp í nokkra tugi prósenta af árlegu rekstrarfé viðkomandi samtaka.“

Þetta hef ég bent á að ræða þurfi um. Ég vænti þess að ný lög, þar sem m.a. er talað um sveitarfélögin verði til þess að þau endurskoði allan sinn stuðning, hvort sem er í gegnum æskulýðsnefndir eða íþrótta- og tómstundanefndir, í formi húsnæðis, afnota af húsnæði eða beinna styrkja. Félögin eru í raun og veru þjónustustofnanir ef svo má að orði komast. Æskulýðsfélögin veita íbúum sveitarfélaga þjónustu um allt land með því að halda utan um frístundatíma ungs fólks, frístundatíma sem það hefur vissulega gott af. Félögin eru með ýmiss konar starfsemi sem veitir unglingunum hreinlega betra líf, betri líðan o.s.frv. Jafnframt segir í skýrslunni:

„Því er oft haldið fram að stuðningur frá hinu opinbera margfaldist að verðgildi í hugsjónastarfi félags- og tómstundasamtaka.“

Frú forseti. Frumvarpi um æskulýðslög, til endurnýjunar á æskulýðslögum, ber að fagna. Lögin munu að mínu mati bæta starfið, m.a. vegna aukinna krafna, utanumhalds o.s.frv. En auknar kröfur leiða til aukins kostnaðar. Ég held að við getum ekki lengur treyst á að leggja það á sjálfboðaliða. Þess vegna ítreka ég nauðsyn þess að bæði ríki og sveitarfélög endurskoði afstöðu sína til fjárhagsstyrkja til æskulýðsfélaga á landinu.