Loðnuveiðar.
Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi þakka fyrir þessa umræðu. Þetta er auðvitað ekki í fyrsta skipti sem við ræðum þessi mál. Hv. þingmaður bað um utandagskrárumræðu 17. janúar sl. og hóf síðan umræðu hér undir öðrum dagskrárlið um þetta tiltekna mál. Ég tel einfaldlega að þetta mál verðskuldi það að við ræðum það heilmikið. Þetta skiptir okkur öll miklu og við eigum auðvitað að fara yfir þessi mál hérna, á þessum pólitíska vettvangi jafnt og vísindalegum vettvangi eða vettvangi sjómanna og útvegsmanna sem málið varðar alveg sérstaklega.
Auðvitað skiptir það mjög miklu máli hvernig við stöndum að þessari nýtingu. Hv. þingmaður spurði mig grundvallarspurningar sem var sú hvort ekki væri ástæða til að fara varlega varðandi nýtinguna á loðnunni.
Vitaskuld er það svo að þegar ég tók ákvörðun um það í síðustu viku að gefa út kvóta til loðnuveiða var það gert á grundvelli varúðarsjónarmiða eftir að hafa farið yfir það með þeim sem gleggst þekkja til. Þá var það niðurstaða mín að það væri óhætt og skynsamlegt að gefa út loðnukvóta núna. Ég tel að stefna okkar varðandi loðnumálin eigi einfaldlega að vera sú að við eigum að nýta loðnustofninn til veiða en við eigum að gera það af mikilli varkárni, í fyrsta lagi auðvitað þannig að við stefnum ekki stofninum í hættu og í annan stað verðum við að tryggja að hann geti áfram verið þessi mikilvægi þáttur í hinu flókna samspili í fæðubúskap hafsins.
Við leggjum til grundvallar ákveðin meginsjónarmið, þau að skilja eftir nægjanlegt magn til þess að stofninn standi undir hrygningu og sé sjálfbær. Þegar við horfum á þetta til lengri tíma er alveg augljóst mál að þessi stefna hefur tekist. Okkur hefur tekist að nýta loðnustofninn þannig að hægt hefur verið að veiða mikið magn úr honum jafnframt því að hann hefur gengið til hrygningar. Við sjáum auðvitað að við veiddum ekki mikið af loðnu ár eftir ár ef hrygningin hefði ekki tekist.
Það er hins vegar alveg rétt að það eru mjög mikil vonbrigði að við skyldum ekki finna meira en rúmlega 600 þús. tonn af loðnu í þessum leiðangri núna. Vitaskuld urðum við að leggja heilmikið í þessi verkefni. Við vorum gagnrýnd fyrir það á sínum tíma að við sinntum ekki loðnuleit nægilega vel en ég tel reyndar að sú gagnrýni hafi ekki verið rétt. Við reyndum að sinna þessu eins og mögulegt var og það sem skiptir miklu máli til lengri tíma litið er sú staðreynd að við fundum nægjanlegt magn til að standa undir hrygningunni og síðan var það á grundvelli þeirra varúðarsjónarmiða sem ég lagði hér áherslu á að út voru gefin 200 þús. tonn.
Það er ekki nóg með það. Ég gerði það einnig þannig að þegar ég gaf út reglugerð varðandi veiðarnar á loðnunni var líka ákveðið að banna flottrollsveiðar nema á tilteknu svæði. Það bann tók gildi núna um hádegið og miðað við stöðu veiðanna eins og þær eru í dag — skipin eru að veiða tæplega 40 mílur suðaustur af Papey, loðnan hefur gengið tiltölulega hratt suður með Austurlandinu — þýðir það einfaldlega að flottrollsveiðar liggja væntanlega niðri við landið. Það er gert vegna þess að mat okkar er að það skipti miklu máli að við stöðvum flottrollsveiðarnar með þeim hætti sem þær höfðu verið stundaðar til þess að tryggja að loðnan kæmist í sitt eðlilega göngumynstur.
Það er auðvitað alveg hægt að segja sem svo að ekki séu nægjanlegar rannsóknir og að ekki sé alveg hægt að sanna að þessar flottrollsveiðar hafi neikvæð áhrif á veiðarnar. Út frá varúðarsjónarmiðinu var það hins vegar mat mitt og niðurstaða að engu að síður væri skynsamlegt að skella á þessu banni þó að ég gerði mér mætavel grein fyrir því að þetta mál er býsna umdeilt.
Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að vísbendingar um ætisskort eru mjög alvarlegt mál. Það hefur líka komið fram af hálfu Hafrannsóknastofnunar. Þess vegna eru það út af fyrir sig ánægjuleg tíðindi sem við höfum heyrt og séð víða frá landinu að vísbendingar eru uppi um að fæðubúskapurinn hafi gengið betur ofan í þorskinn en verið hefur undanfarin ár. Það voru bæði vísbendingar frá Norðurlandi og ég hef líka upplýsingar frá vestanverðu landinu um nákvæmlega það sama. Auðvitað vonum við að þetta sé þá til marks um að eitthvað horfi skár í þessum efnum.
Virðulegi forseti. Ég tek undir að þetta er gríðarlega mikið mál sem við erum hér að ræða. Til grundvallar því sem ég ákvað á sínum tíma lagði ég varúðarreglu sem bæði tekur til þess magns sem var heimilt að veiða og ekki síður hins með hvaða hætti þessar veiðar voru stundaðar. Ég vek athygli á því að sú gagnrýni kom líka fram og ekki síður hávær um að eðlilegt hefði verið að gefa út verulegan upphafskvóta miklu fyrr. Ég hafnaði því. Menn töldu líka að það hefði átt að heimila bæði meiri veiði og fyrr. Ég taldi enga ástæðu til að verða við því vegna þess að ég hafði ekki efnislegar forsendur til þess og það var ekki fyrr en mér varð ljóst (Forseti hringir.) hver staðan var sem ég treysti mér til að gefa út þennan varfærnislega kvóta.