Loðnuveiðar.
Frú forseti. Vinstri hreyfingin – grænt framboð leggur áherslu á að við umgöngumst náttúruauðlindirnar af varfærni, þær séu bæði verndaðar og nýttar á sjálfbæran hátt. Við tölum hér um loðnuna. Loðnan er hluti af lífríki hafsins í kringum landið og því er útilokað að líta á hana sem einhvern einangraðan eða afmarkaðan þátt í því lífríki. Við leggjum því áherslu á heildstæðar rannsóknir á lífríkinu. Það þarf enginn að segja okkur að það hafi ekki áhrif að taka yfir eina milljón tonna af loðnu úr lífríkinu.
Það er visst fagnaðarefni að loðna skuli finnast þó í litlu magni sé enn. Ég vil jafnframt fagna þeim skrefum sem verið er að stíga af hæstv. sjávarútvegsráðherra í varfærni við veiðar á loðnu. Við höfum bent á það í umræðum, bæði hér í þingsölum og úti í samfélaginu, að þessar flottrollsveiðar, eins og þær hafa verið stundaðar, séu afar hæpnar gagnvart lífríkinu. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Er það ekki svo að þær voru á sínum tíma gefnar út til bráðabirgða í tilraunaskyni? Og hafa raunar aldrei verið staðfestar sem varanlegur veiðimáti? Ég tel að það eigi að ganga lengra á þessari braut og láta lífríkið njóta vafans meðan við höfum ekki nægilegar rannsóknir til að byggja á. Það eru jú hagsmunir okkar til framtíðar að lífríkið í heild sé varðveitt með þeim hætti að það gefi okkur líka hámarksnýtingu í fiskafla. Að því þurfum við að vinna, frú forseti.