132. löggjafarþing — 59. fundur,  6. feb. 2006.

Stjórn fiskveiða.

448. mál
[17:29]
Hlusta

Kristinn H. Gunnarsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og ég gat um í ræðu minni átti ég kannski ekki hvað sístan þátt í því fyrir sjö árum að sóknardagakerfið var ekki lagt niður. Komið var fram stjórnarfrumvarp sem gerði ráð fyrir því, frumvarp sem tók miklum breytingum í meðförum sjávarútvegsnefndar Alþingis sem ég var formaður fyrir á þeim tíma þar sem sett var í lög ný útgáfa af sóknardagakerfi, hið svonefnda handfærakerfi sem hefur verið við lýði fram til þessa.

Árangurinn af því kerfi var mjög góður, að ég tel. Ég tel að menn hafi náð vopnum sínum á mörgum stöðum á landinu vegna þeirrar leiðar sem var opnuð fyrir nýja aðila inn í atvinnugreinina, og ekki hvað síst í mörgum byggðarlögum á Vestfjörðum sem hafa notið góðs af þessari breytingu.

Ég get horft stoltur yfir farinn veg í þeim efnum. Það verður hins vegar á það að líta að þróunin í sóknardagakerfinu var slík að stefndi í öngstræti og var orðið mjög keimlík þróuninni í kvótakerfinu. Það var greinilegt að meðal þeirra sem stunduðu þessar veiðar eftir sóknardagakerfi var mikill ágreiningur um það hvert stefna skyldi. Straumarnir lágu í þá veru sem löggjöfin síðan tók mið af, þ.e. að styðjast við sams konar löggjöf í báðum kerfunum í stað þess að hafa tvenns konar ólíka löggjöf.

Eins og ég sagði áðan má auðvitað deila um hvort það var rétt skref eða ekki en ég tel þó að þróunin í sóknardagakerfinu hefði orðið með þeim hætti að við stæðum ekki í betri sporum í dag en við stöndum nú eftir þá breytingu sem gerð var.