132. löggjafarþing — 59. fundur,  6. feb. 2006.

Stjórn fiskveiða.

448. mál
[20:04]
Hlusta

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Virðulegi forseti. Ég kem í ræðustól öðru sinni til að halda ræðu. Tilefnið er að sjálfsögðu þessi nýjasta skóbót ofan á blessað fiskveiðistjórnarkerfið okkar. Hér hafa menn farið um víðan völl og talað um sjávarútvegsmál í víðu samhengi eins og oft vill verða þegar við ræðum þau mál í sölum hins háa Alþingis.

Í ræðu minni áðan kom ég aðeins inn á mikilvægi smábátanna fyrir okkur Íslendinga sem þjóð og þá sérstaklega fyrir landsbyggðina. Ég hygg að þar hafi ég a.m.k. einu sinni, þó að kannski séu nokkur ár síðan, átt mér skoðanabræður í öðrum stjórnarflokknum, þ.e. Sjálfstæðisflokknum. Til að mynda sagði hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson í Morgunblaðinu í nóvember árið 2002, með leyfi forseta:

„Uppbygging smábátaflotans er eina vörn sjávarbyggðanna og það smáræði sem smábátarnir hafa verið að fiska hefur þó bjargað því sem bjargað hefur verið í sjávarbyggðum.“

Hæstv. sjávarútvegsráðherra, Einar K. Guðfinnsson, þá hv. þm. Vestfjarða, sagði við Bæjarins besta í nóvember árið 2000, með leyfi forseta:

„Á það var bent fyrir skömmu, að smábátar sköpuðu liðlega fimm prósent af heildarverðmætinu í landinu. Getur það virkilega verið að það séu þessi fimm prósent sem séu að valda vandræðum í stjórnkerfi fiskveiða? Getur það virkilega verið að það séu þessi fimm prósent af heildaraflaverðmætinu sem skekki heildarsamkeppnisstöðu annarra sem starfa í sjávarútvegi í dag? Ég trúi því ekki.“

Við höfum líka séð til verka hv. þm. Einars K. Guðfinnssonar, núverandi hæstv. sjávarútvegsráðherra, þar sem hann hefur einmitt verið að kljást við sægreifaöflin, þessi öfl manna sem vilja sölsa undir sig nýtingarréttinn á auðlindinni í hafinu umhverfis Ísland.

Ég man það mjög glöggt þegar hv. þm. Einar K. Guðfinnsson sagði í kosningabaráttunni vorið 2003 og var þar að ráðast á forstjóra Samherja, þá sagði hv. þingmaður þetta, með leyfi forseta:

„Við munum líka fagurgalann um að útgerðin vestra yrði efld og aukin viðskipti við fyrirtækin á norðanverðum Vestfjörðum. Þetta sagði Þorsteinn Már ekki einasta mér, heldur hafði hann þetta allt saman yfir mannskapnum á skipinu, á fundum og í fjölmiðlum. Það þarf ekkert að rekja þetta frekar. Það stóð ekki eitt einasta orð hjá forstjóranum. Ekki eitt einasta orð. Flóknara er það nú ekki.“

Síðan sagði hann, með leyfi forseta:

„Nú er öldin önnur. Nú reynir Samherjaforstjórinn ekki lengur að sýna á sér mjúku hliðina. Hann stritast stöðugt við að níða skóinn niður af Vestfirðingum með naggi sínu og heitingum. Það virðist sem fleinn í holdi hans að smábátasjómenn eigi veiðirétt sem hann getur ekki læst klóm sínum í. Nú síðast grípur hann til þess lúalega óyndisúrræðis að reyna að etja sjávarbyggðunum í landinu gegn Vestfirðingum. – Þvílík lágkúra og þvílíkt dæmi um lítilmótlegt viðmót slíks höfðingja.

Allt virðist þetta stafa af því að á Vestfjörðum eins og víðar á landinu er nú blómleg útgerð smábáta. Þökk sé löggjöf sem hefur fært þeim veiðirétt. Og enn ýfir það skap Þorsteins Más að vita til þess að við sjálfstæðismenn höfum ákveðið að beita okkur fyrir því að treysta betur stöðu strandveiðiflota sem tryggir sjávarbyggðunum um land allt hráefni. Þannig að fólkið sem þar býr, vinnufúsar hendur, geti fengið störf í atvinnugrein sem er og hefur verið forsenda byggðanna við strandlengjuna.“

Þessi grein var rituð vorið 2003, virðulegi forseti. Það er svo sem hægt að tína fleira til en hér er aftur hv. þm. Einar K. Guðfinnsson sem segir haustið 2002, með leyfi forseta

„Öryggisleysinu sem verður þegar ótti skapast við að aflaheimildir hverfi og að veiðirétturinn verði afnuminn. Það hefur orðið hlutskipti margra. Ekki þarf að nefna dæmin, þau eru í fersku minni fólksins. Nauðvörnin var eins og menn vita oft á tíðum, veiðikerfi smábátanna.“ — Nauðvörnin, veiðikerfi smábátanna.

En nú stöndum við, virðulegi forseti, í þessum sal. Upp er runninn febrúar árið 2006 og við erum að ræða þessa skóbót, veiðikerfi smábáta. Nauðvörnin mikla hefur verið brotin á bak aftur, varnirnar hafa brostið. Það hefur komið fram hér í dag að það var m.a. gert til að koma höggi á Frjálslynda flokkinn. Heyr á endemi. Var það kannski ætlunin allan tímann, eins og hv. þm. Sigurjón Þórðarson sagði áðan, að koma höggi á minnsta flokkinn á Alþingi með því að setja þessi ólög, að koma trillunum í kvótakerfi? Já, lágt geta menn lagst til að koma höggi á pólitíska andstæðinga fyrst þetta er sannleikurinn. Þarna eru að sjálfsögðu komnir verðugir kandídatar fyrir greiningardeild ríkislögreglustjóra, það verð ég að segja.

Hér er þessi skóbót sem minnir mig einna helst á það að hér séu á ferðinni menn sem eru í raun og veru eins og litlir drengir sem hafa verið að leika sér að eldspýtum í flugeldageymslu. Þeir hafa því miður náð að kveikja í tundrinu og flugeldasýningin er komin á fulla ferð með skelfilegum afleiðingum. Vegna þess að það sem er að gerast núna er nákvæmlega það sem við sáum einmitt fyrir, við þingmennirnir í litla flokknum, nákvæmlega það sem við vöruðum við á sínum tíma, þar sem við vorum ekki að hugsa um hagsmuni flokksins okkar, við vorum að hugsa um hagsmuni fólksins í landinu, við vorum að hugsa um heildarhagsmuni þjóðarinnar. Þess vegna vildum halda þessu opnu. Við vildum gefa ungum mönnum kost á því að komast inn í kerfið neðan frá og þessar trillur, sem þá voru í sóknardagakerfinu, gerðu einmitt mörgum ungum manninum kleift að koma undir sig fótunum í þessu kerfi.

Sumir þessara manna eru stöndugir útgerðarmenn í dag, sem betur fer, segi ég. Það er nefnilega þannig að atvinnugrein án nýliðunar ber í sér dauðann. Þannig hlýtur að fara fyrir þessari atvinnugrein ef menn fara nú ekki að hugsa og hlusta, ef menn halda áfram að múra aftur þetta kerfi, eins og þeir eru búnir að gera núna, og ætlast síðan til að áfram komi fram ungir og dugandi útgerðarmenn. Við verðum að opna þetta kerfi aftur og það gerum við best með því að opna það neðan frá. Þessi lög munu ekki stuðla að því að hægt verði að sjá til þess að ungum mönnum verði kleift að komast inn í þessa atvinnugrein, langt í frá, því að þessi lög gera það að verkum að þessi stjórnlausa flugeldasýning, ef svo má segja, mun í raun og veru halda áfram upp að þessu þaki með einum eða öðrum hætti. Við höfum séð það gerast í stóra kerfinu sem kallað er. Við höfum séð þar hvernig sjávarútvegsfyrirtækjum fækkar einu af öðru, hvernig aflaheimildirnar færast á stöðugt færri kennitölur með sameiningum, fyrst og fremst með sameiningum. Ég er ekki á því að allir séu sammála um að það hafi verið jákvætt. Ég bý sjálfur á Akranesi og ég veit alveg hvaða afleiðingar þetta kerfi hafði fyrir minn heimabæ, ég horfi á það hvern einasta dag þegar ég rúnta niður á bryggju. Höfnin þar er draugahöfn, höfn sem iðaði af lífi fyrir tveimur árum er draugahöfn í dag. Það er fyrir tilstilli þessa kerfis sem menn standa hér og mæra og vegsama. Það er fyrir tilstilli þessa kerfis sem að mínu mati stjórnast fyrst og fremst af óstjórnlegri græðgi.

Ég er ekki sannfærður um að það borgi sig að búa til sem stærst sjávarútvegsfyrirtæki og að það skili þjóðarbúinu endilega sem mestum hagnaði, alls ekki. Við verðum að horfa á þetta dæmi í miklu stærra samhengi. Við verðum að taka inn aðra þætti. Ég lít til að mynda svo á að það sé hluti af hagnaðinum af auðlindinni, sjávarútvegsauðlindinni, að hún geti veitt sem flestu fólki atvinnu og ég skammast mín ekkert fyrir að segja það. Þannig fær þjóðin hlutdeild í hagnaðinum af auðlindinni að sem flestir geti haft lifibrauð sitt af henni. Það þarf ekkert að skammast sín fyrir að segja þetta. Mér finnst engin skömm að því þó að úti á landi að séu fleiri hundruð trillur sem veita mikla vinnu, skilja eftir mikið af peningum í byggðarlögunum. Þannig var það. Það sem er svo hagstætt við útgerðina er að hún skapar svo mikilvæg verðmæti og svo mikið af verðmætunum verður eftir í byggðunum. Þannig nýtur þjóðin arðs af auðlindinni. Ég lít a.m.k. svona á þetta.

Þess vegna verð ég að segja það enn og aftur, virðulegi forseti, að það sem gerðist í þessum sal á hinum örlagaríku maídögum árið 2004 var í raun og veru mjög vondur atburður sem hefur haft mjög alvarlegar afleiðingar. Ég held að það hljóti að vera verkefni allra stjórnmálamanna, sem á annað borð finna til einhverrar ábyrgðar, að fara nú í alvöru að hugleiða hvernig við getum farið að því að vinda ofan af þessu kerfi. Ég mun nota ræðutíma minn síðar til að fara einmitt yfir það hvernig ég hefði farið að því að komast út úr þessu kerfi.