132. löggjafarþing — 61. fundur,  8. feb. 2006.

Samningur um menningarmál.

428. mál
[12:50]
Hlusta

menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):

Hæstv. forseti. Ég ætla að svara þeirri fyrirspurn sem lögð hefur verið fyrir mig og geri það með mínu nefi og mínum hætti. En í tilefni af fyrirspurn hv. þm. Kristjáns Möllers vil ég í upphafi svars míns sérstaklega taka það fram, sem hann kom sjálfur inn á í fyrirspurn sinni, að ég svaraði samhljóða fyrirspurn frá þessum sama þingmanni í febrúar á síðasta ári og því leyfi ég mér að vísa til efnisþátta þess svars þar sem forsendur hafa í meginatriðum ekki breyst. Ég get einnig afhent þingmanninum eftir umræðuna endurrit af því svari mínu sem er að finna á þskj. 820 á síðasta þingi og vona að hv. þingmaður virði það við mig að ég noti þann stutta tíma sem ég hef til að bæta við það svar frekari upplýsingum um framkvæmd menningarsamninga utan höfuðborgarsvæðisins.

Í dag eru í gildi þrír menningarsamningar eins og menn vita. Það er við Akureyri um þátttöku ríkisins í menningarlegri atvinnustarfsemi, við Austfirðinga um menningarmál og nú við Vesturland sem tók gildi nú um áramót.

Framlög til þessara samninga samkvæmt fjárlögum 2006 nema samtals 152 millj. kr. og eru þessir samningar þá utan Akureyrarsamningsins sem er samstarfsverkefni menntamálaráðuneytis og samgönguráðuneytis. Það sem nú liggur fyrir er að ganga til samningsviðræðna um áframhaldandi samstarf við Akureyrarbæ og bið ég hv. þingmann að taka eftir þessu, um menningarsamning, en núgildandi samningur rennur út um næstu áramót. Vænst er úttektar á samningnum og þegar hún liggur fyrir nú með vorinu munu fulltrúar Akureyrarbæjar og ráðuneytisins vinna að tillögum að nýjum samningi sem stefnt er að að taki gildi um næstu áramót. Sá samningur tryggir eins og menn vita stuðning ríkisins við rekstur Leikfélags Akureyrar, Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og Listasafns Akureyrar.

Líkt og ég greindi frá í svari mínu í fyrra hafa eftirtalin samtök óskað eftir samningi við ráðuneytið um menningarmál, samtök sveitarfélaga á Suðurlandi, það er Eyþing, það er Fjórðungssamband Vestfjarða og Norðurland vestra með bréfi, dagsett þann góða dag 18. júlí 2005. Öll hafa þessi sveitarfélög og þessi svæði lagt fram menningarstefnu sína til grundvallarviðræðna við ráðuneytið. Í þessu sambandi vil ég þó geta þess að í stefnu sveitarfélaga á Norðurlandi vestra um sameiginlegt starf að menningarmálum, samantekt frá því í maí 2005, kemur fram að í hinu nýja menningarráði munu sitja fulltrúar frá Húnaþingi vestra, úr Austur-Húnavatnssýslu frá Skagafirði og einn fulltrúi frá Siglufirði þannig að í menningarlegu tilliti virðist svo vera að Siglfirðingar hafi talið sig frekar heyra undir Norðurland vestra í fyrra, þótt breyting kunni að verða á þeirra afstöðu nú.

Ég hef sagt það áður í þingsal að ég tel að menningarsamningar af þessu tagi séu byggðarlögum í landinu mjög mikilvægir í öllu tilliti enda höfum við haft frumkvæði að því að gera svona samninga og nú að endurnýja þá eins og var gert við Austurland. Það kemur best í ljós við lestur hinna metnaðarfullu stefnumótunar sveitarfélaganna í menningarmálum. Þessir samningar eru líka mikilvægir fyrir stjórnvöld og sveitarstjórnir þar sem þeir nýta tækifærið til listsköpunar og veita landsmönnum tækifæri til að njóta fjölbreytilegrar menningar um land allt. Ráðuneytið er einnig sannfært um að menningarmál munu í auknum mæli skipta máli í atvinnusköpun á landinu, það hefur sýnt sig og til þess þurfi ákveðinn stuðning frá stjórnvöldum.

Ég vil líka sérstaklega geta þess að menningarsamningurinn við Austurland hefur þróast í mjög jákvæða átt. Sveitarfélögin hafa komið enn frekar til móts við þann stuðning ríkisins sem ég tel vera af hinu góða og það sýnir sig að það er nauðsynlegt að þessir menningarsamningar haldi áfram að þróast. Ríkisstjórnin hefur hins vegar ekki tekið afstöðu til þess enn sem komið er við hvaða samtök sveitarfélaga verði ráðist í viðræður við. Við slíka ákvörðun þarf að hafa í huga margvíslegar forsendur, m.a. byggðaleg sjónarmið, möguleika íbúa til að sækja menningarviðburði innan héraðs og utan eða að vera þátttakendur í menningarstarfi. Því get ég ekki svarað til um það á þessari stundu hvenær samningar við Eyþing né við aðra þá sem óskað hafa eftir slíku samstarfi verða undirritaðir. Það er þó einlæg von mín að við náum innan fárra ára að tengja landið allt með menningarsamningum því að staðreyndin er sú að með þessu móti hefur stjórnvöldum og sveitarstjórnum tekist að efla faglegt starf í menningarmálum og menningartengdri ferðaþjónustu. Við höfum fjölgað atvinnutækifærum úti á landsbyggðinni en ekki síst stuðlað að valddreifingu.

Þetta er sú stefna sem við viljum fylgja eftir. Að sjálfsögðu skiptir fjármagnið ávallt máli, í því hvað hægt er að framkvæma, en ég tel þessar áherslur vera mikilvægar og að þær eigi að taka fram fyrir, m.a. í byggðamálum, því öflug menningarstarfsemi á landsbyggðinni, öflugt mennta- og skólastarf á landsbyggðinni er öflugasta byggðastefnan og það verða allir að sjá og viðurkenna.