132. löggjafarþing — 61. fundur,  8. feb. 2006.

Aukning umferðar.

472. mál
[14:25]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég hlýt að vekja athygli hv. þingmanna á því að þó að umferðarslys séu alvarleg og allt of mörg þá held ég að ekki sé skynsamlegt að gera stöðuna verri en hún er með því að tala um að Hellisheiðarvegur austur fyrir fjall sé í hers höndum. Við erum nýbúin að taka í notkun stórkostleg umferðarmannvirki sem stórbæta og auka öryggið á þeirri leið. Það er eins og hv. þingmenn hafi ekki fylgst með. Hvar hafa þeir verið? Hafa þeir ekki farið þessa leið? Fara þeir aldrei í kjördæmi sitt? Ég átta mig ekki á þessu. Ég held að það sé ekki skynsamlegur kostur fyrir landshluta að telja almenningi trú um að það sé nánast ófært til Suðurlandsundirlendis vegna þess að vegurinn sé í hers höndum. Við erum í miklum uppbyggingaraðgerðum, líka á Hellisheiðarveginum.

Ef hv. þingmenn hafa kynnt sér samgönguáætlunina og þá ákvörðun sem tekin var í tengslum við sölu Símans, þá kynnast þeir því að við erum að stórauka, sem er algerlega andstætt við það sem hv. 2. þm. Norðvest., Jóhann Ársælsson, nefndi. Ég hef sem betur fer ekki þurft að standa í því að skera niður vegaframkvæmdaáform á næstu missirum heldur hið gagnstæða. Við erum að setja 15 milljarða til viðbótar við það að við gerum ráð fyrir að láta yfir 17,5 milljarða á ári til uppbyggingar vegakerfinu á árunum 2002–2008.

Síðan er það aðalatriði málsins að vegagerðarmenn á Íslandi, hönnuðir og þeir sem vinna við umhverfismat hafa ekki undan að framkvæma fyrir þá fjármuni sem samgönguráðherrann hefur útvegað í uppbyggingu vegakerfisins.