132. löggjafarþing — 61. fundur,  8. feb. 2006.

Suðurlandsvegur.

473. mál
[14:40]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka þessa umræðu og svör hæstv. ráðherra. Það voru gífurleg vonbrigði að ekki náðist samstaða allra þingmanna Suðurkjördæmis um að flytja saman tillögu til þingsályktunar um að ljúka breikkun vegarins milli Selfoss og Reykjavíkur á næstu fjórum árum. Það voru gífurleg vonbrigði. Tillagan er að sjálfsögðu flutt til að skapa þrýsting og ná því fram að þessum vegabótum verði lokið á næstu fjórum árum.

Umræða um 12 ára samgönguáætlun í haust er fullkomlega óviðunandi hvað þetta varðar. Aðalatriðið er að skapa þrýsting á stjórnvöld til að þessum vegabótum verði hrint í framkvæmd og lokið á næstu fjórum árum. Það voru mér mikil vonbrigði að hlusta á þá varnarstöðu sem hv. stjórnarþingmenn voru í hvað það varðar að þetta sé ekki komið inn á áætlun. Miðað við fyrri yfirlýsingar hæstv. samgönguráðherra, ég las í blöðunum um daginn að það yrði að tvöfalda veginn t.d. milli Hveragerðis og Selfoss, þá þóttu mér svör hans ákaflega loðin áðan. Vissulega liggur fyrir hjá hæstv. ráðherra að 2+1 verði ofan á — það verði að mati núverandi samgönguyfirvalda, sem vonandi verða kosin frá völdum eftir rúmt ár, 2+1 vegur frá Rauðavatni og Selfossi og einhvern tíma í framtíðinni verði vegurinn á milli Hveragerðis og Selfoss tvöfaldaður vegna umferðaraukningar. Þetta er óviðunandi og döpur framtíðarsýn og ég skora á hv. samgönguyfirvöld að tímasetja lok breikkunar á Suðurlandsvegi. Umferðaraukningin um veginn er gífurleg. Hann er löngu sprunginn á álagstoppum, umferðaröryggi á veginum er fjarri því að vera viðunandi og það verður að taka á. Það þolir enga bið eftir einhverri 12 ára samgönguáætlun. Það er engum ofsögum sagt að vegurinn um Hellisheiði er í hers höndum þegar umferðin er mikil. Þarna verða samgönguyfirvöld að taka á málinu, standa við stóru orðin. Yfirlýsingar ráðherra á dögunum, sem mátti skilja sem svo að ljós væri að færast yfir málið, kveiktu væntingar í brjósti margra Sunnlendinga.