Rekstur vöruhótela.
Hæstv. forseti. Ég flyt fyrirspurn í tveim liðum til hæstv. samgönguráðherra um rekstur vöruhótela:
1. Hafa möguleikar til reksturs fleiri vöruhótela en nú eru í rekstri verið kannaðir? Hér er átt við vörugeymslur með fjölbreytta möguleika til að veita viðskiptaaðilum í inn- og útflutningi þjónustu. Kemur til greina að hið opinbera taki þátt í stofnun eða hvetji til rekstrar slíkrar starfsemi í þeim tilgangi að hafa áhrif á vörudreifingu með þungaflutningum um landið?
2. Ef svo er ekki, er ráðherra þá tilbúinn að láta kanna hagkvæmni slíks reksturs og áhrif hans á þungaflutninga á vegum landsins?
Ástæður þessarar fyrirspurnar eru í raun flestum kunnar. Gríðarleg aukning hefur orðið á þungaflutningum um þjóðvegi landsins á síðustu árum. Ástæðurnar fyrir aukningunni eru fyrst og fremst kröfur um hraða og þjónustu bæði við almenning og fyrirtæki í landinu. Þess vegna hafa skipaflutningar lotið í lægra haldi fyrir flutningum á landi þrátt fyrir að ódýrara sé að flytja margs konar vörur með skipum en með flutningabílum. Það er að mínu mati ekki hægt að gera ráð fyrir að flutningar á sjó nái aftur til sín vöruflutningum út á hafnir landsins nema þjónustan verði jafngóð og sú sem fæst með flutningum á landi. Þetta er mögulega hægt, a.m.k. á sumum landsvæðum, með rekstri vöruhótela á heppilegum höfnum.
Ég tel skynsamlegt að gera vandaða könnun á möguleikum til slíks reksturs. Markmið slíkrar könnunar ætti að leiða í ljós hvort rekstur vöruhótela á tilteknum þjónustusvæðum gæti orðið hagkvæmur, hve miklum sparnaði yrði hægt að ná vegna minni þungaflutninga á landi og hvort skynsamlegt gæti verið að hið opinbera tæki með einhverjum hætti þátt í því að koma þjónustu af þessu tagi á fót. Mér sýnist að þjónusta vöruhótels við fólk og fyrirtæki t.d. frá Akureyri sé ekki ólíklegur kostur en til að slíkur rekstur geti gengið þarf að vera mögulegt að flytja meiri hluta þeirra vara sem dreift yrði þaðan beint frá útlöndum. Þetta kann að vera flókið úrlausnarefni vegna þess að innflytjendur eru margir og það er mikil samkeppni milli þeirra. Hefjist hins vegar skipaflutningar beint til vöruhótels á staðnum ætti að vera hagkvæmt fyrir innflytjendur að senda þær vörur sínar sem dreifa ætti á nálægum svæðum á þetta vöruhótel. Það gæti verið mjög hagkvæmt fyrir hið opinbera að flýta fyrir þróun sem hér er lýst og því er hreint ekki útilokað að einhvers konar stuðningur við uppbyggingu slíkrar þjónustu komi til greina. Þess vegna ber ég fram þessar spurningar til hæstv. samgönguráðherra.