Menntun leikskólakennara.
Virðulegi forseti. Síðustu mánuði hefur ítrekað komið fram að víða á leikskólum landsins hafa verið talsverð vandræði vegna manneklu, m.a. vegna viðvarandi starfsmannaveltu sem er gríðarleg í leikskólum. Víða hefur þurft að grípa til þess ráðs að senda börn heim hluta úr mánuði. Vart þarf að nefna að það skapar álag á fjölskyldurnar og líka þá starfsmenn sem fyrir eru. En töluvert hefur vantað af starfsmönnum á leikskóla hér á landi síðan í haust.
Vandinn er m.a. fólginn í gríðarlegri starfsmannaveltu. Hún er allt of mikil í leikskólunum. Það á ekki bara við nú í haust. Sá vandi er ekki nýr af nálinni þótt ástandið hafi verið óvenjuslæmt í haust. En samkvæmt vef Hagstofu Íslands var starfsmannaveltan á leikskólunum um 23% í desember 2004, þar af voru nálægt 30% meðal ófaglærðra og 7% meðal faglærðra leikskólakennara. Við sjáum að leikskólakennarar eru stöðugra vinnuafl en þeir eru einungis rúm 30% þeirra sem kenna á leikskólunum. Það hlýtur því að vera verkefni okkar, til að reyna að minnka starfsmannaveltu á leikskólunum sem eru hluti af grunnþjónustu sveitarfélaganna, að mennta fleiri leikskólakennara.
Tvennt þarf að koma til til að minnka starfsmannaveltu. Það eru í fyrsta lagi hækkuð laun. Það mál er í vinnslu á vegum sveitarfélaganna og er sá bolti farinn allvel af stað. Ég lít svo á að næsta verkefni sé að fjölga leikskólakennurum. Þar spilar hæstv. menntamálaráðherra stærst inn í vegna þess að eins og staðan er nú þá tökum við ekki nógu marga inn í þetta nám og svörum ekki eftirspurn eftir slíku námi. Því vil ég spyrja hæstv. menntamálaráðherra eftirfarandi spurninga:
1. Hversu margir sóttu um nám í leikskólakennarafræðum og hversu mörgum þeirra var synjað um skólavist árin 2000–2005, sundurliðað eftir árum og skólum?
2. Eru uppi áform um að heimila Háskólanum á Akureyri og Kennaraháskóla Íslands að fjölga innritunum í leikskólakennaranám?
3. Hefur ráðuneytið sett sér markmið um fjölda útskrifaðra leikskólakennara á næstu árum? Það er lykilspurningin í málinu vegna þess að við þurfum að sjá skýr markmið sett til framtíðar um fjölgun í þessari stétt.