Íbúðalánasjóður.
Hæstv. forseti. Þróunin á íbúðalánamarkaði undanfarin missiri hefur sannarlega verið hröð. Eins og við munum voru sett lög á vorþingi 2004 um breytingar á skuldabréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs. Það leiddi til afnáms húsbréfakerfisins og síðar sama ár voru samþykkt lög sem heimiluðu hækkun lánshlutfalls íbúðalána í allt að 90%. Við skulum ekki gleyma því að á Alþingi var fullkomin samstaða um framangreindar lagabreytingar þrátt fyrir að bankarnir hefðu í ágúst sama ár hafið að bjóða íbúðalán á betri kjörum en þeir höfðu áður treyst sér til.
Á fyrri hluta ársins 2004 var Íbúðalánasjóður nánast einráður á íbúðalánamarkaði með um 80% af markaðshlutdeild en nú, aðeins tveimur árum síðar, er hlutdeild sjóðsins mun minni eða um 50%. Bankarnir hafa þannig náð miklum árangri í markaðssetningu á íbúðalánum sínum. Það er hins vegar langt í frá hægt að fullyrða núna að þessi þróun sé varanleg þótt ýmislegt bendi til að svo kunni að vera. Ekki má gleyma því að forsvarsmenn KB-banka, stærsta banka landsins, hafa lýst því opinberlega yfir að bankinn greiði niður þau íbúðalán sem hann veitir. Það er í sjálfu sér þeirra mál og út af fyrir sig fagnaðarefni fyrir íbúðakaupendur ef aðilar á markaði eru tilbúnir til að vera svo rausnarlegir. Miðað við afkomutölur bankanna má e.t.v. segja að þeir hafi vel efni á því að gera vel við viðskiptavini sína. Það er fagnaðarefni.
Ekki er þó allt gull sem glóir. Í umræðunni um samkeppni á íbúðalánamarkaði má ekki gleyma því að neytendavernd er í sumum tilvikum afar takmörkuð. Til þess að njóta bestu kjara setja flestir bankanna skilyrði um að viðskiptavinir skuldbindi sig til að eiga öll sín viðskipti hjá viðkomandi banka. Þannig gangast viðskiptavinirnir t.d. undir það að stofna lífeyrissparnaðarreikning og/eða greiðslukortareikning. Ef þeir kjósa síðan síðar að breyta þeirri ákvörðun sinni þurfa þeir að sætta sig við að greiða u.þ.b. 1% hærri vexti en umsamið var. Íbúðalán bankanna munu þannig til lengri tíma litið mögulega draga úr samkeppni á fjármálamarkaði.
Samkvæmt lögum um húsnæðismál og reglugerðum sem settar eru á grundvelli þeirra laga eru réttindi lántakenda tryggð ef þeir lenda t.d. í vanskilum eða verða fyrir óvæntum breytingum á sínum högum. Sambærileg vernd er fjarri því að vera tryggð hjá öðrum lánveitendum. Sú hætta er líka fyrir hendi að einn stór aðili muni ráða þróun mála á íbúðalánamarkaði. Ákveðnar vísbendingar eru um að sú þróun eigi sér nú þegar stað. Möguleikar banka á hagstæðri fjármögnun ráðast að miklu leyti af stærð þeirra og markaðshlutdeild. Fjármögnunarkjörin skipta að sjálfsögðu öllu máli og þau vaxtakjör sem viðkomandi banki getur síðan boðið viðskiptavinum sínum. Í umræðum um hugsanlegar breytingar á íbúðalánamarkaði megum við ekki heldur gleyma því að horfa á heildarmyndina. Hverjar skyldu vera ástæður þess að Íbúðalánasjóður er yfirleitt til, hæstv. forseti?
Ég hef líkt og fleiri ráðherrar fagnað því að nýir fjármögnunarmöguleikar standa nú almenningi til boða. Það er þó ekki þar með sagt að ekki sé lengur þörf fyrir aðkomu ríkisins á húsnæðislánamarkaði. Í mínum huga er meginhlutverk ríkisins að sjá til þess að markmið laga um húsnæðismál verði uppfyllt og að öllum landsmönnum sé tryggður aðgangur að ódýru fjármagni til húsnæðisöflunar, óháð efnahag eða búsetu. Þær leiðir sem valdar eru til að uppfylla þessi markmið hljóta að taka mið af aðstæðum á hverjum tíma, en hins vegar er ljóst að Íbúðalánasjóður er einungis tæki stjórnvalda til að tryggja jafnrétti og jafnvægi í húsnæðismálum. Hlutverk sjóðsins verður því augljóslega að endurmeta í ljósi breyttra aðstæðna á íbúðalánamarkaði og sú vinna stendur einmitt yfir þessa dagana.
Það kemur hins vegar ekki til greina af minni hálfu að leggja til að sjóðurinn verði lagður niður eða seldur. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður, upphafsmaður þessarar umræðu, gerir sér grein fyrir hversu mikils virði þessi sjóður er. Það þjónar ekki hagsmunum skattgreiðenda að leggja hann niður. Með því væri verið að kasta opinberum fjármunum á glæ.
Ég hef sagt að haft verði samráð við hagsmunaaðila um hugsanlegar breytingar á hlutverki Íbúðalánasjóðs. Með hagsmunaaðilum á ég ekki einungis við þá aðila sem starfa á fjármálamarkaði, heldur einnig samtök neytenda, námsmanna, aldraðra, fatlaðra, launþega og fleiri. Þessi vinna mun taka tíma og lagabreytinga er því ekki að vænta á yfirstandandi þingi.
Ég legg áherslu á að ef ákvörðun verður tekin um að ráðast í frekari breytingar á húsnæðiskerfinu og endurskoðunarhlutverki hins opinbera á íbúðalánamarkaði, svo sem að breyta Íbúðalánasjóði í heildsölubanka sem ég útiloka alls ekki, verður það ekki gert nema með því að víðtæk samstaða náist um það mál.
Ábendingum hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um þætti sem hafa áhrif á samkeppnisstöðu Íbúðalánasjóðs gagnvart bönkunum er því til að svara að þetta er nokkuð sem löggjafinn hefur ákveðið. Skattfrelsi Íbúðalánasjóðs og ríkisábyrgð á skuldbindingum hans hafa augljóslega þau áhrif að sjóðurinn getur boðið lægri vexti en ella væri mögulegt. Við skulum ekki gleyma því að þátttaka bankanna á þessu sviði er alveg ný af nálinni. Íbúðalánasjóður er á hinn bóginn sá aðili sem falið er samkvæmt lögum að framfylgja stefnu stjórnvalda í húsnæðismálum. Það er því Alþingis að ákveða hvort afnema beri þau sérréttindi sjóðsins sem hv. þingmaður nefnir. Ef það verður gert mun hins vegar draga úr hæfni sjóðsins til að sinna sínu lögbundna hlutverki. Það er alveg skýrt, hæstv. forseti.
Vaxtakjör Íbúðalánasjóðs ráðast algjörlega af þeim fjármögnunarkjörum sem honum bjóðast á hverjum tíma. Nú undanfarið hefur ávöxtunarkrafa íbúðabréfa farið hækkandi og þar með hafa vextir á útlánum sjóðsins einnig hækkað. Þetta hefur ekki einungis neikvæð áhrif því að það er ljóst að það er samhengi á milli vaxtastigs íbúðalána og húsnæðisverðs sem sést m.a. á því að íbúðaverð hækkaði í desember í kjölfar vaxtahækkana hjá Íbúðalánasjóði. Sú hækkun dró úr spennu í hagkerfinu og minnkaði verðbólgu.