132. löggjafarþing — 63. fundur,  9. feb. 2006.

Tilkynning um dagskrá.

[10:32]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Um klukkan 1.30 í dag, að loknu hádegishléi, fer fram umræða utan dagskrár um aðgerðir gegn fíkniefnaneyslu. Málshefjandi er hv. þm. Margrét Frímannsdóttir. Hæstv. heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.