132. löggjafarþing — 63. fundur,  9. feb. 2006.

Skýrsla um framvindu byggðaáætlunar.

[11:05]
Hlusta

Arnbjörg Sveinsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Það er lagaskylda að leggja fram þessa skýrslu. (KLM: … leggja ekki alltaf fram það sama, meina ég.) Það er aftur á móti matsatriði hversu lík hún er þeirri fyrri en ég held að við verðum að passa okkur á að fylgja þessari lagaskyldu sem iðnaðarráðherra hefur til að leggja fram skýrslu um framvindu byggðaáætlunar. Ég veit ekki, hæstv. forseti, hvort ástæða er til þess að tala um það efnislega undir þessum lið hvað þessi skýrsla inniheldur. Við höfum fullt og mikið tækifæri til þess á eftir að ræða þetta allt saman í samhengi. Það er augljóst mál að umræða á að fara fram í þinginu um skýrsluna, og við getum svo haft ýmsar athugasemdir við hana efnislega. Mér finnst fulllangt gengið að vera að ræða þetta á þeim nótum að það eigi alls ekki að ræða skýrsluna hérna. (Gripið fram í.)