Stefnumótandi byggðaáætlun 2006--2009.
Hæstv. forseti. Eins og kveðið er á um í 7. gr. laga um Byggðastofnun legg ég nú fyrir Alþingi tillögu að stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2006–2009. Lögum samkvæmt lýsir áætlunin markmiðum og stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum, áætlunum um aðgerðir og tengsl byggðastefnu við almenna stefnu í efnahags- og atvinnumálum og áætlunum á sviði opinberrar þjónustu í landinu. Í fylgiskjali með þingsályktunartillögunni er gerð grein fyrir ástandi og horfum í þróun byggðar í landinu. Samhliða legg ég fram skýrslu um framvindu byggðaáætlunar fyrir árin 2002–2005.
Aðdragandi að framlagningu þingsályktunartillögunnar er í stuttu máli sá að haustið 2004 fól iðnaðarráðuneytið Byggðastofnun að vinna frumdrög að nýrri byggðaáætlun sem skyldi byggjast á grunni þágildandi áætlunar en segja má að einkunnarorð hennar hafi verið: „Þróun byggðar á grundvelli þekkingar og nýsköpunar“. Ráðuneytið og Byggðastofnun kölluðu atvinnuþróunarfélög og landshlutasamtök sveitarfélaga til sérstaks fundar um gerð byggðaáætlunarinnar 18. febrúar 2005. Á fundinum var kallað eftir hugmyndum fundarmanna um aðgerðir til þess að ná markmiðum áætlunarinnar. Fjölmargar tillögur komu fram á fundinum og í kjölfar hans. Iðnaðarráðuneyti fór yfir tillögurnar og tók mið af þeim við gerð áætlunarinnar. Byggðastofnun skilaði drögum að byggðaáætlun til ráðuneytisins í apríl 2005. Þá kallaði ráðuneytið önnur ráðuneyti til liðs við sig og óskaði eftir að þau skilgreindu hvert á sínu sviði aðgerðir til að ná markmiðum byggðaáætlunar. Uppkast að þingsályktunartillögu um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2006–2009 lá fyrir í byrjun október sl. og var þá sent til umsagnar hins breiða hóps sem komið hafði að gerð þess auk annarra sem sérstakra hagsmuna hafa að gæta. Uppkastið var jafnframt lagt fram á heimasíðu Byggðastofnunar. Viðbrögð voru góð en hátt á fjórða tug umsagna bárust og hefur verið tekið tillit til þeirra athugasemda sem þar komu fram eins og völ var á.
Með þessu móti var leitast við að ná sem víðtækastri sátt og samhljómi um byggðaáætlunina. Efling byggðar er meðal meginmarkmiða ríkisstjórnarinnar. Húns stefnir að því að treysta undirstöður byggðar í landinu og skapa jöfn skilyrði til atvinnu, menntunar og menningar. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á samvinnu dreifbýlis og þéttbýlis um efnahagslegan stöðugleika svo að markmið um frekari framfarir, uppbyggingu atvinnulífs, bættar samgöngur og öryggi borgaranna náist. Í yfirlýsingunni segir að hagsmunir landsins felist í markvissu samstarfi höfuðborgar og landsbyggðar og gagnkvæmum skilningi.
Eitt fjögurra meginstefnumiða iðnaðar- og viðskiptaráðherra fyrir árin 2004–2007 er að treysta búsetu á landsbyggðinni. Í stefnumörkun ráðuneytisins hef ég tekið mið af þeim aðgerðum sem skilgreindar voru í byggðaáætlun fyrir árin 2002–2005 og byggt á því að menntun, hátt almennt þekkingarstig og nýsköpun í atvinnulífinu séu meginstoðir varanlegrar búsetu á landsbyggðinni og forsenda efnahagslegra framfara og félagslegrar velferðar íbúanna.
Sú þingsályktunartillaga sem ég mæli nú fyrir og athugasemdir með henni hafa að geyma nánar útfærða stefnu stjórnvalda í byggðamálum fyrir árin 2006–2009. Sett eru fram markmið, lagðar áherslur og mótaðar áætlanir um aðgerðir.
Í tillögunni er lagt til að eftirfarandi þrjú meginmarkmið verði lögð til grundvallar:
1. Að landshlutakjarnar verði efldir en jafnframt hugað sérstaklega að leiðum til þess að treysta búsetu í þeim byggðarlögum sem glímt hafa við viðvarandi fólksfækkun.
2. Að byggðarlög nái að laga sig að örri samfélagsþróun og hröðum breytingum á atvinnuháttum.
3. Að atvinnulíf, menntun, menning og félagslegt jafnræði verði styrkt á landsbyggðinni.
Lagt er til að sérstök áhersla verði lögð á gildi menntunar og menningar, aukna nýsköpunar- og atvinnuþróunarstarfsemi, bættar samgöngur og fjarskipti og styrkingu landshlutakjarnanna Akureyrar, Ísafjarðar og Miðausturlands.
Hér er haldið áfram á þeirri braut sem var mörkuð í byggðaáætlun fyrir árin 2002–2005.
Út frá þessum áherslum hafa verið mótaðar 23 aðgerðir til að ná markmiðum byggðaáætlunarinnar. Með aðgerðunum er sérstaklega leitast við að ná samhljómi með annarri áætlanagerð og aðgerðum stjórnvalda. Aðgerðir byggðaáætlunar hafa almennt í för með sér eflingu opinberrar starfsemi á landsbyggðinni. Aðgerðirnar eru listaðar upp í þingsályktunartillögunni sjálfri en nánar útfærðar í athugasemdum með henni. Það er rétt að taka fram að þessar aðgerðir eru fjarri því tæmandi fyrir aðgerðir stjórnvalda í byggðamálum á gildistíma byggðaáætlunarinnar. Aðgerðirnar 26 marka í flestum tilvikum ákveðinn ramma en gert er ráð fyrir því að iðnaðarráðuneyti skilgreini nánar í samstarfi við önnur ráðuneyti og fleiri aðila tiltekin samstarfsverkefni innan rammans. Verkefnin geta jafnframt falið í sér samstarf ráðuneyta og annarra aðila án beinnar aðkomu iðnaðarráðuneytis.
Þetta er sambærilegt fyrirkomulag og hefur verið viðhaft við framkvæmd byggðaáætlunar fyrir árin 2002–2005.
Náið samstarf iðnaðarráðuneytisins við önnur ráðuneyti um framkvæmd verkefna á málefnasviðum þeirra er mikilvægt fyrir framgang byggðastefnu enda er málaflokkurinn þess eðlis að að hann tekur til flestra þátta samfélagsins.
Í þingsályktunartillögunni er gert ráð fyrir að iðnaðarráðherra skipi verkefnisstjórn til að hafa umsjón með framvindu byggðaáætlunarinnar.
Með leyfi forseta langar mig að fara stuttlega yfir þær aðgerðir sem tillagan gerir ráð fyrir að gripið verði til í því skyni að ná markmiðum byggðaáætlunarinnar.
Lagt er til að unnið verði að mikilvægum samgöngubótum á landsbyggðinni samkvæmt samgönguáætlun og hugað að þróun almenningssamgangna. Góðar og öruggar samgöngur hafa afgerandi áhrif á búsetuskilyrði á landsbyggðinni. Bættar samgöngur innan landshluta hafa þegar stuðlað að stækkun markaðssvæða, aukinni fjölbreytni í þjónustu og fjölgun atvinnutækifæra. Rannsóknir hafa sýnt að með því að bæta samgöngur innan Austurlands, Norðurlands og Vestfjarða sé unnt að skapa þéttbýliskjarna sem bjóði upp á svipaða kosti og höfuðborgarsvæðið. Þá má ekki gleyma mikilvægi greiðra samgangna milli landshlutakjarnanna og höfuðborgarsvæðisins.
Í þingsályktunartillögunni er lagt til að áfram verði unnið að sameiningu sveitarfélaga í heildstæð atvinnu- og þjónustusvæði. Samhliða verði unnið að hugsanlegum breytingum á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og tekjustofnum sveitarfélaga. Lagt er til að unnið verði áfram að því að tryggja fjarskipti og bæta gagnaflutningsmöguleika á landsbyggðinni í samræmi við fjarskiptaáætlun og stuðlað að því að jafnaður verði mismunur á kostnaði við flutningana. Nútíminn gerir kröfur um aðgengi að góðum og öruggum fjarskiptum hvar og hvenær sem er. Góð fjarskipti eru þannig mikilvægur þáttur í rekstrarumhverfi fyrirtækja á landsbyggðinni. Þau eru forsenda þess að fólk geti notið þeirra lífsgæða sem almennt er gerð krafa um, og mikilvægi þeirra fyrir öryggi borgaranna er ótvírætt.
Gert er ráð fyrir því að gerð og framkvæmd vaxtarsamninga verði mikilvægur liður í framkvæmd byggðaáætlunar. Þannig sameinast opinberir aðilar og einkaaðilar um aðgerðir til að efla samkeppnishæfni svæða og auka hagvöxt. Lagt er til að árangur af samningunum verði metinn reglulega. Segja má að með vaxtarsamningum sé ábyrgð á framkvæmdum á sviði byggðamála að nokkru leyti færð til hagsmunaaðila í héraði. Þegar hafa verið gerðir vaxtarsamningar um Eyjafjarðarsvæðið og Vestfirði og unnið er að gerð vaxtarsamninga fyrir Suðurland og Austurland. Þá hefur verið ákveðið að ráðast í gerð vaxtarsamninga fyrir Norðvesturland og Vesturland.
Í þingsályktunartillögunni er lagt til að árið 2006 verði skipulögð markviss söfnun og úrvinnsla tölfræðilegra gagna um byggðaþróun svo að reglubundin söfnun og úrvinnsla geti hafist hjá Byggðastofnun í upphafi árs 2007. Það er mikilvægt að tölfræðileg gögn um byggðaþróun séu ávallt tiltæk enda eru slík gögn grundvallaratriði við stefnumótun og ákvarðanatöku. Nokkuð hefur vantað upp á að gögnum sem snúa að byggðaþróun sé markvisst safnað og unnið úr þeim og þau birt með reglubundnum hætti. Hér er lagt til að úr því verði bætt.
Gert er ráð fyrir því að hafinn verði undirbúningur að gerð svokallaðra landshlutaáætlana. Innan Evrópusambandsins er unnið skipulag fyrir stór landsvæði þar sem mynduð er sameiginleg framtíðarsýn og stefnumótun svæða um sjálfbæra þróun efnahagssamfélags og náttúrufars. Íslendingar taka nú þátt í verkefni Norðurslóðaáætlunar Evrópusambandsins um gerð svæðisáætlana á norðlægum slóðum. Lagt er til að niðurstöður þessa verkefnis verði athugaðar og kannaðir kostir þess að gera landshlutaáætlanir á þeim grunni sem saman mundu ná yfir Ísland allt.
Lagt er til að gerð verði athugun á stöðu byggðarlaga sem glímt hafa við viðvarandi fólksfækkun. Styrkleikar þeirra og veikleikar verði metnir, og greindir möguleikar til eflingar byggðarlaganna. Þótt víða hafi tekist að snúa vörn í sókn í byggðamálum hefur ýmsum byggðarlögum á landsbyggðinni reynst erfitt að glíma við fólksfækkun sem sums staðar hefur verið viðvarandi um nokkurt skeið. Staðan hefur verið einna erfiðust hjá byggðarlögum sem liggja það fjarri þéttbýliskjörnum að ekki er hagkvæmt að sækja vinnu þangað og erfitt er um vik að njóta þeirrar þjónustu sem þar er í boði. Það er mikilvægt að hugað verði sérstaklega að þessum byggðarlögum.
Þá er lagt til að stoðkerfi atvinnuþróunar og nýsköpunar á landsbyggðinni verði samhæft og starfið gert markvissara, Nýsköpunarmiðstöðinni á Akureyri og atvinnuþróunarfélögum verði áfram tryggður öruggur starfsgrundvöllur. Gert er ráð fyrir því að árið 2006 verði gerð áætlun um víðtæka eflingu rannsókna, tækniþróunar og nýsköpunar á landsbyggðinni. Í áætluninni verði skilgreint áherslusvið og fyrirkomulag samstarfs mótað. Samstarfið verði svo rekið sem þróunarverkefni út gildistíma byggðaáætlunarinnar.
Það er mikilvægt að rannsóknir og tækniþróun á fræðasviðum sem eru sérstaklega til þess fallin að styrkja nýsköpun í atvinnulífi nái varanlegri fótfestu.
Þrjár aðgerðir snúa beint að eflingu menntunar. Lagt er til að áfram verði unnið að uppbyggingu þekkingar- og háskólasetra á landsbyggðinni. Þá er lagt til að kostir dreifmenntunar, þar sem aðferðum fjarkennslu og staðbundinnar kennslu er beitt saman, verði nýttir til að veita fjölbreytt námsframboð á öllum skólastigum með samstarfi skóla. Meðal annars verði stuðlað að samstarfi háskóla um fjarkennslu. Skilgreind verði ákveðin marksvið í starfsmenntun á landsbyggðinni og unnið að eflingu þeirra í samstarfi framhaldsskóla, fyrirtækja og móðurskóla í starfsmenntun.
Loks er gert ráð fyrir því að framboð símenntunar á landsbyggðinni verði aukið í samstarfi símenntunarmiðstöðva og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Jafnframt verði stuðlað að samstarfi símenntunarmiðstöðva og framhaldsskóla um starfsmenntun fyrir fullorðna.
Það leikur enginn vafi á því að efling atvinnulífs á landsbyggðinni og varanleg styrking búsetu byggist að verulegu leyti á því að fólki gefist sem lengst kostur á að stunda fjölbreytt nám í heimabyggð, hvort tveggja bók- og verknám. Í tillögunni er gert ráð fyrir því að unnið verði að eflingu menningar á landsbyggðinni, m.a. með því að halda áfram gerð menningarsamninga við sveitarfélög. Styrking íþrótta- og æskulýðsstarfs er liður í eflingu menningar. Lagt er til að unnið verði að því að gera afrakstur tilraunaverkefnisins um rafrænt samfélag aðgengilegan fyrir önnur byggðarlög. Á grunni byggðaáætlunar fyrir árin 2002–2005 voru því valin tvö byggðarlög til að reka tilraunaverkefni um svokallað rafrænt samfélag í því skyni að styrkja upplýsingasamfélagið á landsbyggðinni. Hér er um að ræða eðlilegt framhald þess verkefnis.
Gert er ráð fyrir að unnið verði að bættri heilbrigðisþjónustu, m.a. með flutningi verkefna á sviði heilbrigðismála frá ríki til sveitarfélaga. Heilbrigðisnet sem m.a. tengir saman heilbrigðisstofnanir og gerir fjarlækningar mögulegar verði þróað áfram og tekið í fulla notkun. Þá er lagt til að unnið verði markvisst að gagnkvæmri samfélagsaðlögun innflytjenda og kannað að frumkvæði heimamanna í hverjum landshluta hvort kostur sé á að stofna þjónustumiðstöðvar fyrir innflytjendur.
Tillagan gerir ráð fyrir því að gerð verði úttekt á stöðu landbúnaðar, sjávarútvegs og iðnaðar á landsbyggðinni og greind helstu sóknarfæri og nýsköpunarmöguleikar þessara hefðbundnu atvinnugreina. Hugað verði að því hvort efla megi opinbera þjónustu við þessar atvinnugreinar á landsbyggðinni, t.d. með flutningi tiltekinna verkefna.
Þá er lagt til að unnið verði að öflugri uppbyggingu ferðaþjónustu. Áhersla verði lögð á sérkenni hvers landshluta og skipulagningu vaxtarsvæða. Þá verði unnið að því að bæta aðstöðu ferðamanna í þjóðgörðum og tryggja öruggt aðgengi þeirra.
Lagt er til að unnið verði að því að efla þátt kvenna í atvinnurekstri með ráðgjöf og námskeiðum og huga að leiðum til þess að gera stoðkerfi atvinnulífsins aðgengilegra fyrir konur.
Þá verði unnið að eflingu skapandi greina í samræmi við ályktun Vísinda- og tækniráðs frá 2. júní 2005 með virkri þátttöku landsbyggðarinnar, og umhverfisstarfsemi sveitarfélaga verður efld með áherslu á framkvæmd Staðardagskrár 21, einkum í fámennum sveitarfélögum á landsbyggðinni.
Tvær lokatillögur áætlunarinnar fjalla svo um alþjóðlegt samstarf á vettvangi byggðamála en lagt er til að Ísland verði áfram virkur þátttakandi í Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins og vinni áfram að því að útvíkka starfsemi NORA, Norrænu Atlantsnefndarinnar, og beiti sér fyrir því að samstarfslöndin fjármagni starf hennar.
Að þessari yfirferð lokinni get ég ekki látið hjá líða að minnast á að í kjölfar þess að starfshópur sem falið var að fjalla um fjárhagsvanda Byggðastofnunar skilaði mér tillögum sínum í nóvember. Er nú unnið að því í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu að móta aðgerðir til að vinna bug á vanda stofnunarinnar. Unnið að því að sameina atvinnuþróunarstarfsemi iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins og þróa nýjar fjármögnunarleiðir, m.a. í samstarfi við banka og önnur fjármálafyrirtæki. Það er rétt að taka fram að það er algjört lykilatriði við þessa endurskipulagningu að störfum á Sauðárkróki verði ekki fækkað og að atvinnuþróunarstarfsemi á Ísafirði, Egilsstöðum og Akureyri verði efld. Ég legg áherslu á að unnið verði hratt og örugglega að þessu máli og er sannfærð um að þessar breytingar munu verða heillaskref fyrir landsbyggðina.
Frú forseti. Sú tillaga sem hér er lögð fram er rökrétt framhald byggðaáætlunar fyrir árin 2002–2005 sem ég tel að hafi skilað miklum árangri. Áætlunin byggir á framsýnni stefnu í byggðamálum sem mun stuðla að eflingu byggðar í landinu okkur öllum til frambúðar.
Ég legg til að þingsályktunartillögunni verði vísað að lokinni þessari umræðu til hv. iðnaðarnefndar og til síðari umr.