132. löggjafarþing — 63. fundur,  9. feb. 2006.

Stefnumótandi byggðaáætlun 2006--2009.

391. mál
[11:38]
Hlusta

Hlynur Hallsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég skal reyna að tala hratt. Þetta byrjar því miður ekki sérstaklega vel. Hæstv. iðnaðarráðherra upplýsir okkur um að það sem standi í þessari skýrslu um lækkun á flutningskostnaði og samkeppnisstöðu fyrirtækja úti á landi sé ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar og þess vegna sé ekkert mark á þessu takandi. Það þykir mér mjög miður.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um svokallaðan vaxtarsamning Eyjafjarðar. Margir fögnuðu því þegar þessi samningur var gerður í júlí 2004. Þar var á allt annarri línu talað um hlutina, talað um klasa og að byggja ætti upp á því sem er fyrir á svæðinu, ekki að eitthvað stórt komi frá stjórnvöldum og verði sett niður í Eyjafirði. Hins vegar finnst mér að ekki hafi sérstaklega mikið komið út úr þessari vinnu. Nú er eitt ár til stefnu og hér er vísað í heimasíðu sem er ágæt (Forseti hringir.) fyrir sína hluti en mig vantar svör við þessu.