Stefnumótandi byggðaáætlun 2006--2009.
Hæstv. forseti. Það er náttúrlega alltaf spurning hvað er rétt stefna og kannski getur verið að við séum ekki alltaf sammála um það, ég og hv. þingmaður. En það sem verið er að vinna að í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, og ég kom að í ræðu minni, og varðar atvinnuþróunarkerfið allt, stoðkerfi atvinnulífsins, snýr að því að sameina kraftana. Að mögulega verði til ein stofnun sem fjalli um alla þessa þætti og hún verði með starfsemi hér í Reykjavík og á Sauðárkróki og síðan í þeim þremur byggðakjörnum á landsbyggðinni sem við höfum lagt áherslu á. Ég tel að í þessu felist heilmörg tækifæri og bið hv. þingmann að útiloka ekki fyrir fram að þetta geti verið skynsamlegt.