132. löggjafarþing — 63. fundur,  9. feb. 2006.

Stefnumótandi byggðaáætlun 2006--2009.

391. mál
[12:06]
Hlusta

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur þetta innlegg í umræðu um byggðamál. Það er rétt hjá hv. þingmanni að mörg fyrirtæki á landsbyggðinni berjast í bökkum og það er einnig rétt hjá henni að tryggingagjaldið er mjög íþyngjandi fyrir þessi fyrirtæki. En ég vil spyrja hv. þingmann hvort það sé ekki rétt munað hjá mér að Samfylkingin lagði til síðasta haust hækkun á tryggingagjaldi upp á 400 milljónir og hvort fyrirtækin á landsbyggðinni hefðu ekki þurft að borga sinn skerf af því. Hér verða menn að tala í takt og vera samkvæmir sjálfum sér. Samfylkingin lagði til síðastliðið haust að hækka tryggingagjald á fyrirtæki í landinu.

Hv. þm. Jóhann Ársælsson fór hér mikinn og ræddi um sjávarútvegsmál og talaði fyrir fyrningarleið í sjávarútvegsmálum. Það var reyndar stefna Samfylkingarinnar fyrir síðustu alþingiskosningar. Hv. formaður Samfylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, boðaði sátt við íslenskan sjávarútveg. Þessir tveir hv. þingmenn hafa talað út og suður um málefni sjávarútvegsins. Sjávarútvegurinn er ein af undirstöðum atvinnulífs á landsbyggðinni og því er eðlilegt að spyrja hv. formann Samfylkingarinnar hver raunveruleg stefna Samfylkingarinnar sé í sjávarútvegsmálum. Eða er það kannski eins og með tryggingagjaldið að þar er kápan borin á báðum öxlum?

Hæstv. forseti. Að lokum vil ég nefna að mér fannst það ekki maklegt af hv. þm. Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að tala um vaxtarsamninga, t.d. í Eyjafirði, sem eitthvert tískuorð. Getur það verið neikvætt að leiða aðila á viðkomandi svæðum til samvinnu, fyrirtæki, félagasamtök, sveitarfélög og ríki? Er það neikvætt að leiða þessa aðila saman að borðinu til að byggja upp atvinnulíf í viðkomandi byggðarlögum? Það er undarlegur málflutningur, hæstv. forseti.