132. löggjafarþing — 63. fundur,  9. feb. 2006.

Stefnumótandi byggðaáætlun 2006--2009.

391. mál
[12:16]
Hlusta

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég skil mætavel að íbúarnir á Höfn séu ánægðir með að gerður sé við þá vaxtarsamningur. Að sjálfsögðu hljóta þeir að fagna hverju því frumkvæði sem hugsanlega getur skilað þeim einhverju á þetta svæði og því að stjórnvöld sýni svæðinu áhuga. Ég vona sannarlega að þetta reynist þeim vel. Ég vona það sannarlega. Ég vil samt sem áður gjalda varhuga við því að menn treysti og trúi um of á slíka samninga. Ég vara við því vegna þess að ég held að þeir geti virkað á löngum tíma en þeir taka ekki á aðkallandi vanda sem mörg byggðarlög standa andspænis. Ég held að menn verði að huga að því að grípa til annars konar aðgerða.

Ég vil aðeins segja, varðandi námskostnað og fjarnám, að auðvitað hefur fólki í fjarnámi fjölgað mikið. Þetta er góður kostur og mikilvæg viðbót í menntaflórunni allri saman. En fólki hefur líka fjölgað í námi í framhaldsskólum, á háskólastigi og við þurfum að fjölga því fólki enn frekar. Því miður er þessi þjóð að dragast aftur úr öðrum þjóðum hvað varðar menntun og menntað fólk á vinnumarkaði. Það þarf að styrkja þennan þátt verulega og gefa fólki kost á greiðum aðgangi að menntun, hvar sem það býr á landinu. Þetta er einn þáttur sem ég held að við þurfum að horfa sérstaklega til í byggðamálum, þ.e. menntamálin.

Ég er sammála því að Háskólinn á Akureyri er einhver besta byggðaaðgerð sem hér hefur verið farið í og skapar mikið í kringum sig. Það er mikið fagnaðarefni og auðvitað hljóta allir þingmenn að styðja Háskólann (Forseti hringir.) á Akureyri og vilja veg hans sem mestan.