132. löggjafarþing — 63. fundur,  9. feb. 2006.

Stefnumótandi byggðaáætlun 2006--2009.

391. mál
[12:20]
Hlusta

Arnbjörg Sveinsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Við höfum hér til umræðu annars vegar skýrslu iðnaðarráðherra, um framvindu byggðaáætlunar fyrir árin 2002–2005, og hins vegar hvernig framhaldið á að vera, tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2006–2009.

Ef við lítum fyrst á skýrsluna kemur fram að þar hefur tekist ákaflega vel til. Við framkvæmd byggðaáætlunar er sérstök verkefnisstjórn skipuð fulltrúum frá flestum ráðuneytum. Sú verkefnisstjórn gerir hæstv. iðnaðarráðherra árlega grein fyrir framkvæmd og framvindu byggðaáætlunarinnar. Hins vegar hefur iðnaðarráðherra óskað eftir því við Byggðastofnun að hún fylgist með og taki út hvernig til hefur tekist. Ég held að ástæða væri til, án þess að ég ætli að vitna mjög mikið í þessa skýrslu, að vitna í lokaorð Byggðastofnunar varðandi heildarmatið.

Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Það er mat Byggðastofnunar að árangur þeirra aðgerða sem ríkisvaldið hefur ráðist í á gildistíma byggðaáætlunar 2002–2005 sé verulegur og sums staðar mjög mikill. Aðgerðir hafa þó ekki skilað nægum árangri á nokkrum landsvæðum, svo sem Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, norðausturhorninu, sunnanverðum Austfjörðum, Skaftafellssýslum og Vestmannaeyjum. Við því þarf að bregðast og hefur þegar verið gert að nokkru leyti, svo sem með gerð vaxtarsamnings fyrir Vestfirði, vinnu sem nú er í gangi við gerð vaxtarsamnings fyrir hluta Suðurlands og Vestmannaeyjar og skipun nefndar um stefnumörkun í byggðamálum á Austurlandi. Á það verður að leggja áherslu að frumkvæði og kraftur heimamanna skiptir ætíð mestu máli þegar kemur að því að takast á við breytingar í atvinnuháttum og samfélagsþróun. Skorti þar á verða aðgerðir af hálfu opinberra aðila gagnslitlar.“

Hæstv. forseti. Þarna kemur fram þetta heildarmat, að tekist hafi verulega vel til á mörgum sviðum en þó eru tíunduð í skýrslunni atriði sem ekki hafa á þessu tímabili tekist nægilega vel til með. Í nýrri byggðaáætlun er einmitt reynt að bregðast við þar sem ekki hefur tekist nægilega vel til.

Það er aðeins eitt atriði í skýrslunni sem ég ætla að tala sérstaklega um. Hér kemur fram margt gott en mig langar, með leyfi forseta, að benda á að á bls. 34 er getið um sérstakt verkefni, þ.e. fjarlækningar fyrir sjómenn.

Þar er einmitt sagt:

„Stefnt er að því að framhaldsverkefni verði skilgreind sem muni nýta reynslu þessa verkefnis.“

Ég veit að það eru margir sem líta á þetta sem gott verkefni í nýjum heimi tækni og fjarskipta. Þetta gæti orðið útrásarverkefni þegar fram líða stundir ef nægilega vel tekst til og nægilega vel er stutt við það. Það er því ástæða til þess að spyrja hæstv. ráðherra hvort það verði ekki eitt af þeim verkefnum sem hún muni leggja áherslu á að fylgt verði eftir. Þess ber þó að geta að það er ekki beint inni í byggðaáætlun heldur fellur undir aðrar aðgerðir stjórnvalda, væntanlega heilbrigðisráðuneytisins. Ég tel mjög mikilvægt að þetta verkefni verði þróað og byggt upp. Það gæti orðið vísir að stóru verkefni sem gæti nýst í útrás.

Hæstv. forseti. Varðandi stefnumótandi byggðaáætlun sem hér liggur fyrir þá er ljóst að meginlínurnar þar eru bættar samgöngur, menntun og menning. Við vitum að það eru stóru þættirnir í byggðamálum nú til dags. Ég tel mjög mikilvægt að við förum vandlega yfir þessa ályktun og auðvitað þarf þingnefndin að fara yfir hana. Það eru margháttaðar og margþættar aðgerðir sem gert er ráð fyrir í 23 liðum. Það er síðan skilgreint í athugasemdum við tillöguna. Að mínu mati eru þær veigamestar sem snúa að samgöngum, menntun og menningu. Tveir liðir snúa sérstaklega að samgöngunum, þ.e. fyrsti liðurinn er um bættar samgöngur og síðan er fjallað um bætt fjarskipti.

Það er ástæða til að minnast á að samgönguráðherra hefur gert heilmikla áætlun sem hann hefur kynnt vítt og breitt um landið, varðandi háhraðatengingar, síma og sjónvarp til allra landsmanna, og til sjómanna á hafi úti. Þetta kynnir hann undir heitinu „Ísland altengt“. Í þeirri áætlun er m.a. gert ráð fyrir GSM-sambandi á öllum stofnvegum landsins og að allir íbúar landsins hafi aðgang að háhraðatengingu. Þetta verkefni á að vinna mjög fljótt og á þessu ári og næsta ári á að sjá fyrir endann á verkefninu. Ég held að það sé ástæða til þess að nefna þetta í samhengi við byggðamál. Fjarskiptamál eru eitt af því sem landsbyggðarmenn eru almennt helst sammála um að skipti mestu máli. Þegar við höldum fundi okkar úti á landi eru það þessi atriði sem talað er um á nánast hverjum fundi, þ.e. samgöngur og fjarskipti.

Einnig er getið í nokkuð mörgum liðum um menntun og menningu. Gert er ráð fyrir uppbyggingu þekkingarsetra og háskólasetra og að áfram verði unnið að uppbyggingu þeirra á landsbyggðinni. Það hefur tekist ágætlega til varðandi þessa uppbyggingu og er ástæða til að halda mjög þétt áfram. Ánægja hefur verið með þá uppbyggingu og eflingu dreifmenntunar á öllum skólastigum.

Hv. þm. Drífa Hjartardóttir fór yfir tölur um þann fjölda sem nú er bæði í framhaldsskólanámi og háskólanámi í fjarkennslu og það er ótrúlegt hversu mikið þeim hefur fjölgað sem velja þá leið til náms. Það er auðvitað vegna þess að þarna er möguleiki fyrir þá sem búa í dreifðari byggðunum til að sækja sér menntun, möguleiki sem annars hefði ekki verið til staðar. Það sést einnig á aldurssamsetningu þeirra sem eru í þessu námi að þarna eru mjög margir sem ekki höfðu áður kost á því að sækja sér menntun en hafa nú tækifæri til þess með nýrri tækni og auknu framboði á þessu sviði. Þetta á auðvitað við um símenntunina líka, þá menntun sem fólk nær sér í hver á sínu sviði og í sínu fagi.

Menningarstarfsemin er eitt af því sem er mikið byggðafestumál. Framlög til menningarsamninga og menningarhúsa á landsbyggðinni hafa verið aukin mjög og við vitum að allir landshlutar sækjast eftir menningarsamningum sem nú þegar eru til staðar á Austurlandi og nú síðast Vesturlandi. Ég held að það sé eitt af stóru málunum að mjög fljótt verði lokið við að gera samninga við sveitarfélögin um menningarmálin. Það hefur sýnt sig að t.d. á Austurlandi þar sem búið er að semja við sveitarfélögin um einn heildarsamning, sem var reynsluverkefni á þessu sviði, hafa menningarmálin eflst gífurlega og þátttaka íbúanna í menningarmálum hefur aukist mikið. Það eru alls konar skemmtileg verkefni sem hafa sprottið upp úr því að heimamenn hafa fengið tækifæri til að skipuleggja menningarmál sín eftir eigin höfði og full ástæða til þess að svo verði áfram og að sem flestir og allir landshlutar geti gert þetta.

Hæstv. forseti. Það er eitt til viðbótar sem ég vil nefna hér en í ræðu ráðherra kom fram yfirlýsing frá hæstv. iðnaðarráðherra um að það ætti að sameina þær stofnanir sem vinna að atvinnuþróunarmálum og byggðamálum í eina stofnun. Það voru fréttir fyrir mig að heyra þetta hér frá hæstv. ráðherra og þess vegna hlýt ég að spyrja ráðherra af hverju þessa er ekki getið í þingsályktunartillögunni sem við erum með fyrir framan okkur, Stefnumótandi byggðaáætlun.

Þar stendur í 8. lið, með leyfi forseta:

„Styrking atvinnuþróunar: Stoðkerfi atvinnuþróunar og nýsköpunar á landsbyggðinni verði samhæft og starfið gert markvissara. Nýsköpunarmiðstöðinni á Akureyri og atvinnuþróunarfélögum verði áfram tryggður öruggur starfsgrundvöllur.“

Yfirlýsing ráðherra gekk út á það að gerð yrði ein stofnun úr öllum þeim stofnunum sem núna vinna að atvinnuþróunarmálum. Þess vegna vildi ég fá nánari skýringar á því hjá hæstv. ráðherra hvernig þetta er hugsað.

Tími minn er á þrotum en ég vil aðeins í lokin nefna það varðandi starfsemi Byggðastofnunar að ég álít að ekki verði hjá því komist að ræða hvernig lánastarfsemi Byggðastofnunar eigi að verða háttað. Ég tel algjörlega nauðsynlegt að hafa slíka leið eins og lánastarfsemin er. Hún er mjög mikilvæg fyrir þau fyrirtæki sem eru að byggja sig upp og hafa ekki náð tiltrú bankakerfisins. Það er algjörlega ljóst, eða það ætti öllum að vera það ljóst, að þarna er um áhættulán að ræða og til þessarar lánastarfsemi er stofnað með þeim hætti að þarna sé um áhættulán að ræða. En árangurinn af þessari lánastarfsemi er mjög mikill sem er hægt að sjá á hversu öflug fyrirtæki hafa sprottið upp vegna þess að þau hafa haft aðgang að lánum hjá Byggðastofnun. Síðan auðvitað þegar þessi fyrirtæki hafa orðið stór og öflug og skilað arði eins og öll fyrirtæki eiga að gera þá hafa bankarnir verið tilbúnir til þess að lána á betri kjörum, (Forseti hringir.) sem er auðvitað afar jákvætt. En ég held að það sé mjög mikilvægur þáttur í byggðaþróuninni, (Forseti hringir.) byggðastuðningnum, að þessi lánastarfsemi sé til staðar með einhverjum hætti.