132. löggjafarþing — 63. fundur, 9. feb. 2006.
Stefnumótandi byggðaáætlun 2006--2009.
391. mál
Hæstv. forseti. Ég hef alveg fullan skilning á því og hef alveg þolinmæði til að bíða eftir fullmótuðum tillögum. En ég gat ekki betur skilið hæstv. ráðherra en að hún hefði nefnt eina stofnun og það stæði til að sameina þær stofnanir sem ynnu að atvinnuþróunarmálum og byggðamálum, að sameina ætti þær í eina stofnun. Ég ætlaði ekki að gera ráðherranum rangt til en ég skil hana svo að verið sé að vinna að þessum málum núna á vegum ráðuneytisins.