132. löggjafarþing — 64. fundur,  10. feb. 2006.

Ummæli ráðherra í umræðu um byggðamál.

[10:33]
Hlusta

Kristján L. Möller (Sf):

Frú forseti. Í gærdag stóð yfir ágætisumræða um stefnumótandi áætlun í byggðamálum fyrir árin 2006–2009. Umræðan stóð yfir í allan gærdag og var um margt mjög góð. Margir þingmenn tóku til máls og lauk umræðunni um átta- eða hálfníuleytið. Sá punktur sem ég vil gera að umræðuefni eru orð hæstv. byggðamálaráðherra Valgerðar Sverrisdóttur í lok umræðunnar. Mér fannst þau orð hennar ákaflega ósmekkleg og allt að því bara vitlaus. Ég ætla að hafa þau hér eftir þannig að þingheimur heyri þau, með leyfi forseta:

„Þetta hefur ekki verið umræða hérna í dag. (Gripið fram í: Ha?) Ef það hefði verið málefnaleg umræða hefði ég komið, að sjálfsögðu, hér í lokin til að tala og tjá mig. (Gripið fram í: Nú?) Þetta hefur verið mjög neikvæð umræða, nánast raus í hv. þingmönnum, árásir og niðurrif. Það hefur ekki verið bent á kosti í stöðunni og mér finnst það ekki þingmönnum til sóma að niðurlægja landsbyggðina og landsbyggðarfólk með þessum hætti. Þess vegna hef ég ekki nokkurn áhuga á því að koma hér upp í lokin til að tala um málefnið.“

Þetta er ótrúlegur málflutningur og mér finnst þetta dómgreindarskortur og allt að því dónaskapur að tala svona til hv. þingmanna. Ég vek athygli á því að hún var ekki að tala við okkur stjórnarandstæðinga heldur alla þingmenn sem tóku þátt í umræðum í gær.

Virðulegi forseti. Það er svo að Alþingi er málstofa og við tökumst á um og okkur getur greint á um hlutina. Við erum ekki í iðnaðarráðuneytinu þar sem menn geta leyft sér að deila og drottna og enginn þorir að segja neitt. Við erum heldur ekki í framsóknarfélagi Grýtubakkahrepps þar sem umræðan á kannski að snúast um allt annað og ekkert má gagnrýna.

Virðulegi forseti. Ég hlýt að gera alvarlegar athugasemdir við þessi lokaorð og finnst þau ekki ráðherranum sæmandi.