Ummæli ráðherra í umræðu um byggðamál.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir að koma á framfæri þessari ágætu ræðu sem ég hélt í lok umræðu í gær og ég stend þar við hvert einasta orð sem ég lét frá mér fara. (Gripið fram í: Viltu ekki bæta aðeins í?) Það var nákvæmlega svona sem ég upplifði þessa umræðu og hún olli mér gríðarlegum vonbrigðum vegna þess að ég fór inn í hana með það í huga að ræða við hv. þingmenn um þann mikilvæga málaflokk sem byggðamálin eru. Það komu hins vegar ekki neinar tillögur frá stjórnarandstöðunni. Eins og ég sagði var þetta raus í upp undir átta klukkustundir. Ég fór í nokkur andsvör, það kom jú reyndar fram ein tillaga og hún var sú að taka málaflokkinn af mér sem iðnaðarráðherra. Ég brást við henni í andsvari (Gripið fram í.) og þurfti því ekki að svara henni. En þegar ég tala um að verið sé að lítilsvirða landsbyggðarfólk, þá meina ég það. Það er nefnilega þannig að fólki á landsbyggðinni líkar illa þegar svona er talað til þess eins og hér var gert í gær. Því líkar það illa og það er ekki landsbyggðinni til framdráttar að tala eins og hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu upp til hópa. (Gripið fram í: Þingmenn, þú sagðir þingmenn.) Það töluðu þrír stjórnarsinnar og ég þakka þeim innilega fyrir það að hafa tekið þátt í umræðunni og að fara yfir þessa umræðu og ég er sannfærð um að þeir munu komast að sömu niðurstöðu og ég, að þetta var fáránleg umræða og ekki landsbyggðinni til framdráttar.