132. löggjafarþing — 64. fundur,  10. feb. 2006.

Ummæli ráðherra í umræðu um byggðamál.

[10:51]
Hlusta

Margrét Frímannsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Þau orð sem hér voru viðhöfð af hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra í gærkvöldi voru hæstv. ráðherra til lítils sóma og lítilsvirðing við störf þingsins.

En að koma síðan hér aftur af sinni alkunnu hógværð og kurteisi og virðingu, eða hitt þó heldur, gagnvart þingmönnum, Alþingi og störfum þess og bæta í hér í morgun á þann hátt sem hæstv. ráðherra hefur gert, ekki í fyrsta sinn, að ávarpa þingið á lítilsvirðandi hátt og gera lítið úr störfum þeirra sem hér leggja sig fram frá degi til dags.

Virðulegi forseti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra leggur sitt af mörkum til þess að setja störf þingsins í eins konar uppnám. Ég held að það sé kominn tími til að forsætisnefnd og formenn þingflokka ræði þessa framkomu við hv. þingmenn og þingið almennt og störf þess ef þau eiga að verða viðtekin venja hjá einstökum hæstv. ráðherrum.