132. löggjafarþing — 64. fundur,  10. feb. 2006.

Umferðarlög.

503. mál
[16:19]
Hlusta

Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Hægt er að taka undir öll meginmarkmið þessa frumvarps sem hæstv. samgönguráðherra flytur hér um að auka og efla öryggi á þjóðvegum landsins.

Ég vil nefna eitt atriði sem hæstv. ráðherra kom ekki inn á. Það eru þessir miklu þungaflutningar á þjóðvegunum, þeir miklu flutningar sem þar eiga sér stað eftir vegum sem alls ekki bera slíka bíla. Í fréttum nýverið hefur komið fram að slysatíðni hjá þeim vegfarendum sem þarna eru á ferðinni er há.

Við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs höfum flutt tillögur nú í vetur, reyndar ásamt þingmönnum Frjálslynda flokksins, um að taka upp strandsiglingar og að ríkið reyndi að hvetja til þess og kæmi að því sem beinn hvatningaraðili að ákveðinni strandsiglingaþjónustu yrði komið á hringinn í kringum landið, ekki bara til þess að jafna kostnað heldur líka til þess að tryggja umferðaröryggi og létta þessu af þjóðvegunum. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra. Þessi mál hafa verið ítrekað inni í ráðuneyti og samgöngunefnd til skoðunar og þau hafa fengið gríðarlegan stuðning í samfélaginu. En samt virðist vera erfitt að koma þessu á framkvæmdastig.

Í öðru lagi langar mig að nefna — ég vík að því betur í seinna andsvari — heimildir fyrir eftirlitsmenn Vegagerðarinnar til þess að stöðva akstur farmflutninga- og hópbifreiða. Ég ætla að fá að koma betur að því í seinna andsvari, frú forseti.