Umferðarlög.
Virðulegi forseti. Í gærkvöldi var ég á opnum stjórnmálafundi á Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Eitt af því sem nemendum þar var tíðrætt um var einmitt öryggi á vegum úti, m.a. vegna missigs og umferðar stórra ökutækja eins og fram kom í umræðum hér rétt á undan. Ég get ekki annað en verið sammála þeim sem þar töluðu og tjáðu sig. Ástandið á vegunum er vissulega oft og tíðum slæmt og þó að e.t.v. sé ekki hægt að tala um ógnvænlega slysatíðni — eða hvernig það var nú orðað hér á undan — vegna stórra flutningatækja þá er tilfinning mín sú hægt sé að tala um ógnvænlega hættu vegna þessara tækja. Þess vegna held ég að mjög brýnt sé að leita allra leiða sem færar eru til að bæta ástandið á vegunum miðað við núverandi aðstæður, þar með talið ástandið á vegunum. Það er alveg ljóst að á meðan við ekki leggjumst í mjög miklar endurbætur á vegunum þá munum við enn um allmörg ár þurfa að búa við það ástand sem er í dag. Ég held því miður að ég verði að fallast á það með hæstv. ráðherra að við munum ekki færa meginþunga flutninganna af vegunum.
Það væri örugglega hægt að breyta skipulaginu, m.a. með fleiri vöruhótelum eins og hv. þm. Jóhann Ársælsson hefur bryddað upp á í þingsölum. Þannig yrðu flutningar um skemmri vegalengd en nú er. Ég vil taka fram að hv. þingmaður átti ekki við að ríkið kæmi upp slíkum vöruhótelum heldur hefði það einhvers konar forgöngu þar um. Þetta átti ekki að vera aðalinntakið í ræðu minni þótt ég vildi koma inn á þessi mál.
Ég bendi á að þær breytingar sem hér eru lagðar til eru ekki komnar fram af góðu tilefni, heldur m.a. vegna aukinnar neyslu ávana- og fíkniefna í samfélagi okkar. Það er vissulega ekki gott tilefni. Það er fjallað um ávana- og fíkniefni í nokkrum greinum þessa frumvarps. En í 14. gr. þar sem er fjallað er um þau, í langri grein, kemur fram undir lokin að, a.m.k. í þeirri grein, séu lyf felld undir ávana- og fíkniefni. Tiltekin lyf geta að vísu verið ávanabindandi en mér finnst óviðkunnanlegt að fella lyf undir ávana- og fíkniefni eins og þarna er gert. Fólk getur gert mistök við neyslu lyfja sem það þarf að taka af heilsufarsástæðum.
Mér finnst að það eigi einfaldlega að setja orðið lyf þarna inn í. Oftast nær, sem betur fer, tekur fólk einfaldlega lyf vegna þess að það er nauðsyn á því en ekki vegna þess að það ætli sér að misnota þau. En í a-, b- og c-lið 14. gr. eru talin upp þau tilfelli er á ekki að beita ökumann viðurlögum samkvæmt 1. mgr. og 4. mgr. 14. gr. En í 1. og 4. mgr. 14. gr. er aðeins verið að fjalla um ávana- og fíkniefni. Orðið lyf kemur þar hvergi fram. Mín skoðun er sú að það eigi að setja orðið lyf þarna inn, annars finnst mér ákvæðin fá á sig óþarflega leiðinlegan svip.
Í máli ráðherra kom fram að ný tækni er í boði til mælingar á ávana- og fíkniefnum í einstaklingum, þ.e. eitthvert svitapróf. Það gefur mér tilefni til að minnast á hvort ekki væri einfaldlega ástæða til að setja inn í lagafrumvarpið ákvæði sem heimili eftirlitsaðilum að nýta hverju sinni nýjustu tækni við eftirlit. Ef ég hef tekið rétt eftir er tiltekin ákveðin tækni en sem betur fer er stöðugt framþróun í greiningaraðferðum eins og fram kom í máli ráðherra. Við getum greitt framþróuninni leið með einfaldri orðalagsbreytingu á borð við þá sem ég minntist á.
Það getur verið þröngur vegur á milli eftirlitshlutverks lögreglu og Vegagerðar og sjálfsagt að fara með varúð í þeim efnum. Mér finnst ástæða til að reyna að efla eftirlitið og gera það sem markvissast þannig að eftirlitsaðilar geti sem víðast og oftast verið á ferðinni. Nýlega höfum við haft fregnir af því í fjölmiðlum að í tveimur tilfellum lá við stórslysum af völdum flutningabíla með illa frágenginn farm. Þau tvö dæmi sýna því miður að ástæða er til að hafa eftirlitsmenn á ferðinni víða og þeir þurfa góðar aðstæður til að sinna sínu hlutverki. Að svo komnu máli hef ég ekki athugasemdir við að Vegagerðinni fái þetta hlutverk. En það má auðvitað ekki takmarka aðstæður lögreglu til að sinna eftirliti. Ég vænti þess að lögregla hafi eftirlit með þessum þætti jafnframt. En mér sýnist frumvarpið til bóta að svo komnu máli.