Frumvarp um aukatekjur ríkissjóðs.
Frú forseti. Það urðu heitar umræður á föstudaginn um lítið frumvarp hæstv. fjármálaráðherra um stórauknar aukatekjur ríkissjóðs, og náttúrlega á þeim sem síst skyldi, nefnilega nýjum Íslendingum sem eru að sækja um ríkisborgararétt. Ég vek athygli þingheims á því að þetta er hækkun upp á hvorki meira né minna en 800%. Það er auðvitað eftir öðru hjá núverandi ríkisstjórn að hækka álögur á þá sem síst skyldi en á sama tíma að hlífa þeim sem hæstar tekjur hafa og best hafa það í þjóðfélaginu, fella niður hátekjuskatt o.s.frv. Þess vegna er mjög ánægjulegt að hæstv. fjármálaráðherra veki athygli á þessu í dag.
Það er reyndar merkilegt að hæstv. ráðherra skýli sér á bak við það að ekki séu til lög sem kveði á um þetta en hins vegar er eðlilegt að ríkisstjórnin fari eftir eigin samþykktum í þessu máli. Það er kominn tími til að það verði gert, þykir mér.