Heyrnar-, tal- og sjónstöð.
Virðulegi forseti. Ég er dálítið hissa á viðbrögðum hv. þingmanns. Hér er verið að sameina tvær stofnanir til að efla starfsemi þeirra. Þær eru í húsnæði á tveimur stöðum núna og takmarkið er að koma þeim í sameiginlegt húsnæði þannig að veita megi þessa þjónustu á einum stað. Þar er vissulega þjónað ólíkum hópum en það er víðar gert.
Ég er sannfærður um að það er hagræðing í sameiningunni án þess að það sé í sjálfu sér megintilgangurinn. Megintilgangurinn með sameiningunni er að styrkja þessar stofnanir, nýta það saman sem hægt er að nýta, ýmsa stoðþjónustu, og styrkja starfsemi stofnananna.
Ég undirstrika að stofnanirnar eru sem stendur í sitt hvoru húsnæðinu. Ætlunin er að koma þeim í sameiginlegt húsnæði. Það gefur í sjálfu sér tækifæri til að efla starfsemina og bæta aðstöðuna bæði fyrir notendur og starfsfólk.