Heyrnar-, tal- og sjónstöð.
Herra forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga með það meginmarkmið að sameina Heyrnar- og talmeinastöð og Sjónstöð í eina stofnun undir stjórn eins forstöðumanns. Það vakna auðvitað ýmsar spurningar þegar þetta frumvarp er skoðað og eins og komið hefur fram, bæði í andsvörum og ræðum hér á undan, er ýmislegt sem hv. heilbrigðis- og tryggingarnefnd þarf að ræða og kalla eftir upplýsingum um þegar við fjöllum um frumvarpið.
Eins og komið hefur fram, og kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöldi, þá eru 70% þeirra sem aðallega þurfa þessa þjónustu, sem eru aldraðir, ósáttir við þetta frumvarp. Ég ætla að vitna hér í frétt Ríkisútvarpsins þar sem segir, með leyfi forseta:
„Aldraðir eru í meiri hluta þeirra sem nýta sér þjónustuna eða um 70%. Ólafur Ólafsson, formaður Landssambands eldri borgara, segir að fulltrúar Félags heyrnarskertra og Blindrafélagsins hafi haft samband við Landssamband eldri borgara til að ræða breytingarnar. Ólafur segir félögin óánægð með margt í frumvarpinu. Þau efist um að þjónustan batni við breytingarnar og hefðu frekar viljað að meira fé væri varið til tækjakaupa og aðgengi skjólstæðinga að góðum tækjum þannig bætt.“
Það er auðvitað alvarlegt ef meginþorri þeirra sem munu nýta sér þjónustu þessarar nýju starfsemi er ósáttur. Við þurfum því kalla til fulltrúa eldri borgara til að fá nánari skýringar á því hvað þeir eru ósáttir við. Í athugasemdum við frumvarpið stendur að kallaðir hafi verið til fulltrúar frá Félagi heyrnarlausra, Foreldra- og styrktarfélagi heyrnardaufra, Blindrafélaginu o.s.frv., eins og lesið var upp hér áðan. Í athugasemdunum stendur: „Var tekið tillit til athugasemda sem fram komu á þeim fundum eftir því sem við átti.“ Við þurfum auðvitað að fá upplýsingar um hvort þarna hafi verið gerðar einhverjar athugasemdir sem ekki hefur verið tekið tillit til, því að þarna eru gerðar athugasemdir við mjög margþætta og mikilvæga starfsemi, eins og segir hér: „Helstu athugasemdirnar sneru að réttarstöðu barna, þjónustustigi, hjálpartækjum, endurhæfingu og gjaldtöku.“
Það hefur komið fram að gjaldtaka muni ekki breytast ef frumvarpið verður að lögum og ég fagna því. En það kom fram í andsvari hjá hv. þm. Helga Hjörvar að Blindrafélagið sé mjög ósátt við þessa sameiningu, Sjónstöðin sinni um 2.000 manns og veiti góða þjónustu, og er spurning hvort ástæða sé til að breyta því. Hæstv. ráðherra ætti þá kannski að rökstyðja það frekar á eftir þegar hann kemur vonandi í lok umræðunnar til að fara yfir þær athugasemdir sem við gerum.
Varðandi fréttir af því á viðskiptaþingi á dögunum að sameining stofnana, sem yfirleitt er gerð í hagræðingarskyni, hafi valdið auknum kostnaði, þá þurfum við auðvitað að kalla eftir upplýsingum um það í nefndinni, ef við ætlum að fara að sameina stofnanir, hvort þetta sé raunin. Hæstv. ráðherra sagði í andsvari áðan að þetta væri ekki rétt, en við þurfum að fá upplýsingar um hvort þarna sé farið með rangt mál. Ég veit auðvitað að Heyrnar- og talmeinastöð þyrfti að komast í betra húsnæði. Hér er talað um að hin nýja stofnun fái nýtt húsnæði sem henti fyrir þessa starfsemi. Það á eftir að koma í ljós hvort það verður sú stofnun eða einungis Heyrnar- og talmeinastöð sem fær hið nýja húsnæði, ef frumvarpið verður ekki að lögum.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra tveggja spurninga áður en ég klára ræðu mína, ég ætla ekki að hafa hana langa af því að ég kem að þessu máli í heilbrigðis- og trygginganefnd þegar málið kemur þangað. Í umsögn frá fjármálaráðuneytinu, fjárlagaskrifstofu, segir að áform heilbrigðisráðuneytisins séu að nýta hagræði sem mest með sameiningunni til að styrkja rekstrargrunn hinnar nýju stofnunar og efla þjónustu hennar. Ég spyr hæstv. ráðherra hvernig hann ætli að efla þjónustuna. Ekki er talið að frumvarpið leiði til aukinna útgjalda fyrir ríkissjóð verði það að lögum. Reyndar er komin fram í fjárlögum heimild til að kaupa eða leigja húsnæði fyrir sameiginlega stofnun. Ég vil því spyrja hvort hæstv. ráðherra sé sannfærður um að það verði hagræði og hvernig hann hyggist efla þjónustu þessarar stofnunar.
Síðan spyr ég hæstv. ráðherra: Er það stefna ríkisstjórnarinnar að gera ráðstafanir í þá veru að sameina þjónustu fyrir fatlaða, eins og menn telja sig vera að gera hér, þ.e. þjónustu við ólíka hópa? Ég spyr af ákveðnum ástæðum, ég spyr að þessu vegna þess að kvartað hefur verið yfir því við þingmenn að þjónusta við langveik börn sé veitt á mörgum stöðum. Fólk þarf að fara á milli fleiri stofnana til að fá þjónustu við langveik börn. Ég sé t.d. í umsögn umboðsmanns barna að hún bendir á, t.d. í umsögn um sjóð fyrir langveik börn, að það sé mjög mikilvægt að þjónustan sé öll veitt á sama stað fyrir foreldra langveikra barna. Ég vil gjarnan fá upplýsingar um það hjá hæstv. ráðherra hvort það sé stefna ríkisstjórnarinnar að verða við þessum ábendingum og sameina á einum stað þjónustu fyrir langveik börn. Ég vildi gjarnan fá það svar frá hæstv. ráðherra og ræða það aðeins við hann hér áður en þessari umræðu lýkur.