132. löggjafarþing — 66. fundur,  14. feb. 2006.

Friðlýsing Jökulsár á Fjöllum.

68. mál
[18:33]
Hlusta

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp örstutt fyrir hönd míns þingflokks. Formaður Frjálslynda flokksins, Guðjón Arnar Kristjánsson, er einn flutningsmanna þessarar þingsályktunartillögu og við styðjum hana að sjálfsögðu.

Ég minni á að hér er á ferðinni þingsályktunartillaga um það að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum og ég geri ráð fyrir því að í þeirri lagasetningu yrði nánar kveðið á um það hvað í þeirri friðlýsingu fælist. Flutningsmaður, hv. þm. Halldór Blöndal, minntist hér áðan á að Vegagerðin hefði verið mótfallin þingsályktunartillögunni í umsögn sinni, Bændasamtökin líka ef ég man rétt. Ég hygg að auðveldlega megi samræma hagsmuni okkar mannanna sem felast í því að standa fyrir nauðsynlegri mannvirkjagerð, þó takmörkuð sé, og síðan það sjónarmið að friðlýsa eigi hið stórkostlega náttúrufyrirbæri sem Jökulsá á Fjöllum er. Ég held að enginn gleymi því sem komið hefur á þetta svæði hvílík stórkostleg náttúrufegurð er þar. Ég man það a.m.k. sjálfur mjög glöggt þegar ég kom þangað í fyrsta sinn. Það hafði mikil og djúpstæð áhrif á mig að koma að þessu mikla fljóti, upplifa náttúruna og þær náttúrumyndir, þær kynjamyndir, sem þar hafa orðið til í gengum aldirnar. Ég hygg að það væri mjög vel til fundið hjá okkur Íslendingum og okkur hér á Alþingi að ganga nú í þetta verk til að tryggja það til frambúðar að komandi kynslóðir megi njóta þessarar stórkostlegu fegurðar.

Ég hygg að mjög drjúgur og mikill meiri hluti sé hér á Alþingi fyrir því að þessi þingsályktunartillaga nái fram að ganga. Ég bendi á að fulltrúar allra stjórnmálaflokka eru flutningsmenn þessarar tillögu, þar af eru tveir fyrrv. umhverfisráðherrar, hv. þm. Siv Friðleifsdóttir og hv. þm. Össur Skarphéðinsson, tveir formenn stjórnmálaflokka og fyrrv. forseti Alþingis — segja má að saman sé komið landsliðið úr íslenskum þingmannahópi. Ég hygg að allir þessir þingmenn hafi á bak við sig mikinn og góðan stuðning. Ég vil mælast til þess, og hafa það endann á minni ræðu, að umhverfisnefnd taki þessa þingsályktunartillögu til umfjöllunar hið fyrsta og málið verði síðan afgreitt frá hinu háa Alþingi fyrir þinglok í vor.