132. löggjafarþing — 66. fundur,  14. feb. 2006.

Styrkir til foreldra sem ættleiða börn frá útlöndum.

213. mál
[18:38]
Hlusta

Flm. (Guðrún Ögmundsdóttir) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir afar þörfu máli, sem er tillaga til þingsályktunar um styrki til ættleiðingar vegna barna sem koma frá öðrum löndum. Flutningsmenn eru margir góðir þingmenn og þar á meðal Kolbrún Halldórsdóttir, sem hér er, Jónína Bjartmarz og Dagný Jónsdóttir ásamt fleirum.

Þetta er þriðja sinn sem þetta mál er flutt og er von mín nú að það geti orðið að raunveruleika.

Hér stendur, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra að setja reglur um styrki til foreldra sem ættleiða börn frá útlöndum. Styrkupphæðir og reglur taki mið af því sem gerist annars staðar á Norðurlöndum. Styrkir verði greiddir eftir komu barns til landsins og verði jafnframt skattfrjálsir. Tryggingastofnun ríkisins hafi milligöngu um greiðslu styrkjanna, eins og um annan kostnað við meðgöngu og fæðingu sé að ræða, og sjái jafnframt um nánari útfærslu á styrkjum þessum.“

Það er afar mikilvægt að þessu máli sé komið fyrir hjá Tryggingastofnun ríkisins því að þar fer öll þjónusta við foreldra og börn fram og þar hafa ferðastyrkir einnig verið afgreiddir, t.d. ferðastyrkir hér áður fyrr varðandi glasafrjóvganir, og jafnframt hafa ýmsir sjúkrasjóðir og fæðingarorlof verið á þeirra höndum. Það er afar brýnt að öll þessi þjónusta sé á einum stað en ekki á margra höndum.

Ég flutti þetta mál fyrst á 130. þingi og síðan aftur á 131. þingi. Þá var það nokkuð breytt vegna þess að upphaflega var ég með tillögu um að þessi mál væru hjá dómsmálaráðuneytinu en breytti tillögunni til samræmis við umsagnir. Þótt svo ættleiðingin sjálf og leyfi til hennar heyri undir dómsmálaráðuneytið er kannski óeðlilegt að styrkir séu jafnframt í höndum þess.

Við vitum að það geta ekki allir eignast börn á hefðbundinn hátt og ástæður þess geta verið mjög margvíslegar en eru oftast tengdar ófrjósemi. Ekki þarf að fara mörgum orðum um það hvaða áhrif slíkt getur haft á fólk sem á sér engan draum heitari en að eignast börn. Undanfarin ár hafa læknavísindin hjálpað mjög mörgum til barneigna með glasa- og tæknifrjóvgun. Sú aðferð dugar ekki öllum og oft lukkast hún ekki. Kostur þeirra fjölskyldna þar sem svo háttar til er að ættleiða barn. Í einhverjum tilvikum er um að ræða ættleiðingar barna sem fædd eru á Íslandi en eins og flestir vita eru það afar fá tilfelli. Þegar ég vann í þessum málaflokki var það kannski eitt barn á ári. Fólk á kost á því að taka fósturbörn en það eru ekki allir sem treysta sér til þess þar sem þar er oft um mjög þung barnaverndarmál að ræða. Við erum líka að tala um það að hér séu ættleidd á bilinu 15–24 börn, segi ég í minni greinargerð. Ég fer nærri að við séum komin upp í 30–35 börn á ári og ber samningur við Kína þá tölu uppi. En börn hafa verið ættleidd alls staðar frá og erum við að tala um á bilinu 400–500 börn hér á Íslandi sem eru ættleidd erlendis frá.

Kostnaður er auðvitað mismikill en nú heyrast helst tölurnar 1,2–1,5 milljónir kr. á fjölskyldu og það er afar dýrmætt að styrkur fáist upp í þessa upphæð. Við þurfum að jafna stöðu fólks sem ekki hefur fjármuni á milli handanna til þess að fara út í slíka ættleiðingu og Norðurlöndin hafa öll verið með slíka styrki. Finnar hafa einnig samþykkt að setja aukna peninga í þennan málaflokk og það er afar brýnt að við fylgjumst með bræðraþjóðum okkar á Norðurlöndunum til þess að jafna félagslega stöðu þessa hóps og jafna hana á við aðra varðandi barneignir.

Mikið hefur verið skrifað um þetta mál í blöðunum upp á síðkastið, margar góðar greinar, og kjörforeldrar eru orðnir mjög virkir í umræðunni. Ég veit líka að það hafa borist bréf til allra þingmanna, ég veit að þessi hópur á líka viðtöl við ráðherra. Ég veit að hæstv. heilbrigðisráðherra hefur tekið mjög jákvætt í þetta mál. Það hefur líka verið talað um að þetta væri kannski mál fyrir hina nýju fjölskyldunefnd sem hæstv. forsætisráðherra hefur skipað. Ég vil meina að svona mál eigi að afgreiða hér í þinginu, hér er tillagan til staðar og þetta er spurning um að ríkisstjórnin gangi frá þessu máli. Þegar málið kemur til hv. allsherjarnefndar þarf kannski ekki að sækja mikið umsagnir því að þær hafa borist og eru allar mjög jákvæðar. Ég nefni verkalýðshreyfingu, einstök verkalýðsfélög og að sjálfsögðu félagið Íslenska ættleiðingu, svo ég tali nú ekki um hin ýmsu pólitísku félög sem eru þegar farin að álykta um málið. Í þessu sambandi minni ég á ályktun frá Sambandi ungra framsóknarmanna sem hvetja til aðstoðar til þess að styrkja þessar ættleiðingar.

Með leyfi forseta, er ályktunin svona:

„Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna skorar á íslensk stjórnvöld að leita leiða til að aðstoða kjörforeldra við ættleiðingar. Í nágrannalöndum okkar eru veittir styrkir til þess að vega á móti miklum kostnaði við ættleiðingar, en enga slíka aðstoð er að fá hér á landi.“

Stjórnin skorar jafnframt á ríkisstjórn Íslands að bregðast við ábendingum kjörforeldra og renna enn frekari stoðum undir þá fjölskyldustefnu sem rekin er á vegum ríkisstjórnarinnar þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi. Þar með höfum við fengið það mjög skýrt.

Jafnframt vil ég aðeins vitna, með leyfi forseta, í grein sem Jóhann Sigurðsson og Margrét Kristjánsdóttir skrifuðu í Morgunblaðið á dögunum og fjallar hún um jafnrétti til barneigna, en þar segir, með leyfi forseta:

„Það hlýtur að teljast sanngjarnt og eðlilegt að íslenska ríkið styrki kjörforeldra til að ættleiða börn til samræmis við við það sem gerist hjá öðrum Norðurlandaþjóðum og stuðli þar með að jafnrétti þegnanna til barneigna. Ættleiðingar á Íslandi eru ekki það margar að styrkir af þessum toga setji ríkisfjármálin úr skorðum, en slíkur styrkur getur skipt verulegu máli fyrir væntanlega kjörforeldra.

Að ættleiða barn að utan er mjög dýrt, kostnaðurinn er frá 1,2 til 1,5 milljóna miðað við að hjón fari saman út að sækja barnið. Mörgum vex þessi kostnaður í augum, einkum þeim sem lakari kjör hafa. Dæmi eru um að fólk hafi ekki séð sér fært að láta drauminn um að eignast barn rætast vegna þess að það hefur ekki ráð á því og ekki í digra sjóði að sækja. Hvað þá að láta sig dreyma um að sækja sitt annað barn.“

Það er eitt af því sem fólk er nú að gera, þ.e. að sækja sitt annað barn. Ef við erum að tala um styrk kannski upp á 400 þúsund kr. þá er um 8–10 milljónir á ári að ræða í slíkan sjóð hjá Tryggingastofnun ríkisins þannig að það er í rauninni kannski sanngjarnt og ekki miklir fjármunir miðað við það hversu dýrmætt þetta er, bæði íslensku samfélagi og þeim foreldrum sem verða þess aðnjótandi að eignast barn með þessum hætti.

Ég ætla ekki að hafa þessa umræðu mína lengri um þetta brýna mál og þetta mikla jafnréttismál milli foreldra og óska þess að málinu verði vísað til hv. heilbrigðisnefndar.