132. löggjafarþing — 67. fundur,  15. feb. 2006.

Svör við fyrirspurnum.

355. mál
[13:37]
Hlusta

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):

Virðulegi forseti. Það er alltaf mjög áhugavert að ræða þingsköpin á hinu háa Alþingi. Þetta eru þau lög sem við eigum að fara eftir við þingfundi. Þetta eru lög.

Ég hef verið að skoða þingsköpin og 49. gr. sem hv. þm. Mörður Árnason las upp úr áðan. Ég sé við þessa skoðun að í raun liggur þetta mikið í hendi forseta þingsins. Forseti þingsins tekur við fyrirspurninni frá þingmanni samkvæmt þessum lögum. Fyrirspurnin á að vera skýr, um afmörkuð atriði og mál sem ráðherra ber ábyrgð á og það á að miða við að hægt sé að svara henni í stuttu máli. En það er forseti sem tekur við fyrirspurninni og sendir hana síðan áfram. Eftir að forsetinn er búinn að samþykkja fyrirspurnina þá fæ ég ekki betur séð en ráðherrann verði hreinlega að mæta hingað og svara henni hvort sem honum líki betur eða verr. Jafnvel þó að fyrirspurnin sé á vissan hátt illa orðuð, ónákvæm, loðin og óskýr ber ráðherra samt sem áður að koma hingað og svara henni. Ráðherra hefði ekki getað neitað því að koma hingað, alls ekki.

Ef við skoðum síðan sjálfa fyrirspurnina þá er það alveg rétt sem hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson benti á að hún er á margan hátt mjög loðin og skrýtin. Ég er gamall starfsmaður Ríkisútvarpsins, fréttamaður og hef starfað á þessum svæðisútvarpsstöðvum m.a., en líka á báðum fréttastofum, bæði sjónvarps og útvarps, og miðað við þá þekkingu sem ég hef á Ríkisútvarpinu og innviðum þess þá hefði ég aldrei leyft þessa fyrirspurn því hún er allt of ónákvæm. Það er ekki tilgreint til að mynda hvaða tímabil hér er verið að leita eftir upplýsingum um. Það stendur ekkert um mánuði eða ártöl. Er verið að tala um síðasta ár? Er verið að tala um síðustu sex mánuði? Er verið að tala um síðustu fimm ár eða síðustu tíu ár? Hér segir, með leyfi forseta:

„Hve hátt hlutfall af fréttaefni svæðisstöðva Ríkisútvarpsins er frá svæðum utan byggðarlagsins þar sem viðkomandi stöð er ...“

Við hvað er átt með þessu? Er verið að spyrja um hversu mikið af efni stöðvarinnar á Egilsstöðum er til að mynda frá Austurlandi öllu, þ.e. fyrir utan bæjarmörk Egilsstaða? Eða við hvað er hér átt? Er verið að spyrja um hversu hátt hlutfall af fréttaefni svæðisstöðvanna séu erlendar fréttir eða fréttir af landsmálum almennt?

Síðan er spurt um það hvaða efni sé unnið af fréttariturum hljóðvarps annars vegar og sjónvarps hins vegar. Það er þannig að á þessum svæðisstöðvum eru fréttamenn. Það er enginn fréttaritari þarna. Þarna eru fréttamenn og þeir eru eins og við vitum öll jafnvígir bæði á útvarp og sjónvarp, enda senda þeir oft inn fréttapistla bæði í útvarp og sjónvarp.

Það væri kannski helst hægt að svara af einhverju viti þriðja liðnum um hve háu hlutfalli af fréttaefni svæðisstöðvanna sé útvarpað á landsrás Ríkisútvarpsins.

Hins vegar fagna ég þessari fyrirspurn því hún vakti hér upp mjög athyglisverðar umræður um hlutverk svæðisútvarpanna.