132. löggjafarþing — 67. fundur,  15. feb. 2006.

Áfengisauglýsingar í útvarpi.

507. mál
[13:51]
Hlusta

Hlynur Hallsson (Vg):

Frú forseti. Það á ekki að vera neinum vafa undirorpið hvernig þetta er. Áfengislögin eru mjög skýr og ég ætla að lesa aðeins upp úr 20. gr., með leyfi forseta:

„Bannið tekur með sama hætti til auglýsinga sem eingöngu fela í sér firmanafn og/eða firmamerki áfengisframleiðanda.“

Svo kemur hér:

„Þó er framleiðanda sem auk áfengis framleiðir aðrar drykkjarvörur heimilt að nota firmanafn eða merki í tengslum við auglýsingu þeirra drykkja, enda megi augljóst vera að um óáfenga drykki sé að ræða í skilningi laganna og ekki vísað til hinnar áfengu framleiðslu.“

Það er þarna sem auglýsendur eru stundum að skýla sér á bak við með fullkomlega óeðlilegum hætti. Það eru dæmi um að það eru auglýstir 0,0% drykkir sem eru alls ekki til. Þeir eru alls ekki seldir. Þetta birtist einhvers staðar á pínulitlum stað í lok auglýsingar þannig að fólk sér þetta almennt ekki. Það er þetta sem við verðum að taka fyrir. Þetta er auðvitað ábyrgð þeirra, á fjölmiðlunum, hjá Ríkisútvarpinu, en ekki auglýsenda sjálfra að segja nei, þetta er áfengisauglýsing, (Forseti hringir.) bein áfengisauglýsing og hana birtum við ekki.