132. löggjafarþing — 67. fundur,  15. feb. 2006.

Áfengisauglýsingar í útvarpi.

507. mál
[13:55]
Hlusta

Fyrirspyrjandi (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Svör hæstv. menntamálaráðherra valda miklum vonbrigðum. Svörin eru tvíþætt. Annars vegar er sagt: Lögin eru ekki brotin. Áfengislög eru ekki brotin. Hins vegar er sagt: Ef menn vilja breyta þessum lögum, hvers vegna ekki að taka upp mál hv. þm. Sigurðar Kára Kristjánssonar og fleiri um rýmkun á banni við áfengisauglýsingum? Ég tek undir með hv. þm. Merði Árnasyni, sem ásamt mér og fleirum hefur flutt frumvarp sem ganga í gagnstæða átt, um að skerpa á lögunum hvað þetta snertir. Það er hins vegar ekki til umræðu nú.

Það sem skiptir máli er að áfengislögin eru brotin og forsvarsmenn og talsmenn fjölmiðlanna, þar á meðal fréttastjóri Fréttablaðsins og talsmaður auglýsingadeildar Ríkisútvarpsins, hafa viðurkennt að svo sé í reynd. Ég tel það vera mjög heiðarlegt af þeirra hálfu að gera það. Talsmaður auglýsingadeildar Sjónvarpsins sagði jafnframt að sér væri vandi á höndum vegna þess að ef litið væri á formið strangt til tekið, þá væri að finna í agnarsmáu letri skírskotun til þess að um óáfengan drykk væri að ræða. Þótt allir sæju að þetta væri auglýsing. Nú gerðist þetta í dagskrá í Ríkisútvarpinu, hún var rofin með bjórauglýsingu sem stríðir gegn 17. gr. útvarpslaga. Það er nú handleggur út af fyrir sig. Þáttur um fíkniefnavandann, rofinn með bjórauglýsingu. Mönnum þótti þetta mjög óþægilegt og þess vegna var þetta viðtal væntanlega daginn eftir.

Þarna voru hlutirnir viðurkenndir. En hæstv. menntamálaráðherra slær höfðinu við steininn og segir þinginu og þjóðinni að ekki sé um neitt lögbrot að ræða. Menn séu að auglýsa eitthvað allt annað en áfengan bjór. Það sjá hins vegar allir að svo er ekki. Ég segi: Ef einhver vafi leikur á hvað er rétt í þessu, eigum við ekki að láta notendur, fólkið í landinu, (Forseti hringir.) njóta vafans og þá brennivínssalann sækja rétt sinn fyrir dómstólum?