132. löggjafarþing — 67. fundur,  15. feb. 2006.

Endurgreiðslur öryrkja til Tryggingastofnunar ríkisins.

467. mál
[14:23]
Hlusta

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Þær aðferðir sem Tryggingastofnun notar eru mjög eðlilegar og það sýnir sig að þar sem margir fá endurgreitt eða viðbót þá eru þær líka nauðsynlegar. Hins vegar leiðir fjöldi þeirra, og þær upphæðir sem menn hafa þurft að endurgreiða, hugann að því hvort verið geti að fólk geri almennt svona mikil mistök í því að gefa upp tekjur sínar eða hvort menn gefi vísvitandi ekki upp þær tekjur sem þeir hafa. Það leiðir hugann enn fremur að því hversu mismunandi er farið með skattsvik og bótasvik. Við skattsvikum eru lagðar álögur, dráttarvextir og jafnvel fangelsi ef menn ekki borga, en hér er farið öllu mildari höndum um þá sem gefa vísvitandi ekki upp þær tekjur sem þeir hafa og er það alveg furðulegt vegna þess að í öðru tilfellinu borga menn til ríkisins fé sem þeir hafa sjálfir en í hinu tilfellinu fara þeir til ríkisins og ná í bætur sem almenningur á.