132. löggjafarþing — 67. fundur,  15. feb. 2006.

Viðhald vega.

488. mál
[15:02]
Hlusta

samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn því að sú vísa er aldrei of oft kveðin að vekja athygli á þörfinni fyrir aukna fjármuni til uppbyggingar vegakerfis á Íslandi. Því fagna ég hverjum og einum þingmanni sem ber upp slíkar fyrirspurnir.

Fyrirspurn hv. þm. Önnu Kristínar Gunnarsdóttur snýst um hvernig ráðherra hyggist bregðast við upplýsingum um stóraukna fjárþörf til viðhalds vegakerfisins vegna aukinna þungaflutninga.

Svar mitt er að það blasir við, eins og kom fram í ræðu hv. þingmanns, að aukin umferð veldur vaxandi kostnaði vegna viðhalds og þjónustu á vegakerfinu. Það er staðreynd sem við gerum okkur góða grein fyrir.

Undanfarin ár hefur umferð vaxið mjög verulega og sér þess m.a. stað í fjárveitingum til viðhalds og þjónustu í gildandi samgönguáætlun sem nær yfir tímabilið 2005–2008. Við höfum því gert ráð fyrir þessari auknu umferð og meiri kostnaði vegna viðhaldsins. Við hönnun vega er yfirleitt miðað við að burðarlag þeirra endist í 20 ár án meiri háttar viðhalds. Er þá miðað við þá umferð sem um veginn fer þegar hann er byggður og spá um umferðaraukningu næstu 20 árin. Segja má að þessir útreikningar rúmi í flestum tilfellum þá umferðaraukningu sem orðið hefur á síðustu árum. Þyngra vegur hins vegar að árið 1995 var leyfilegur ásþungi farartækja hækkaður úr 10 tonnum í 11,5 tonn til samræmis við reglur Evrópusambandsins. Vegirnir höfðu fyrir þann tíma verið hannaðir og byggðir upp í samræmi við staðla sem gerðu ráð fyrir minni ásþunga. Þetta hefur í för með sér að nauðsynlegt er að styrkja vegi sem byggðir voru fyrir þessa ákvörðun árið 1995. Fjölmargir vegir voru byggðir upp með bundnu slitlagi fyrir þann tíma. Því blasir við þörf fyrir endurbyggingu fyrr en menn gerðu ráð fyrir af þessari ástæðu.

Hins vegar er alveg nauðsynlegt í okkar kalda landi, þar sem veðurfar er jafnrysjótt og raun ber vitni um, að viðhafa þungatakmarkanir til að verja vegina. Þó að þeir séu vel uppbyggðir og fullbyggðir er algerlega nauðsynlegt að takmarka ásþunga þegar þannig stendur á hvað veður varðar.

Í gildandi samgönguáætlun, sem ég nefndi fyrr, gerum við ráð fyrir verulegum upphæðum til viðhalds á hverju ári. Á þessu ári gerum við t.d. ráð fyrir því að 2,8 milljarðar fari í beint viðhald og svipuð upphæð, eða 2,7 milljarðar, til þjónustu, þar á meðal vetrarþjónustu. Á næsta ári gerum við ráð fyrir að auka framlög til viðhalds á vegum í ríflega 3 milljarða kr., bæði í viðhald og þjónustu, þannig að ríflega 6 milljarðar fari í viðhald veganna og í þjónustu á vegunum. Á árinu 2008 er jafnframt aukning og þó meiri aukning í þjónustu, er þá m.a. miðað við að auka vetrarþjónustuna sem er auðvitað geysilega mikilvægt, sérstaklega hvað það varðar að auka umferðaröryggið.

Af þessum tölum má sjá, virðulegur forseti, að við leggjum aukna áherslu á viðhald veganna vegna þeirrar staðreyndar að umferðin er að aukast og flutningar á milli landshluta hafa vaxið sem betur fer. Það er mikil gróska í samfélaginu og mikil framleiðsla sem leiðir til þess að vörur eru fluttar á markað og rekstrarvörur þurfa að komast til staða vítt og breitt um landið. Þessir flutningar hafa vaxið og það er af hinu góða. Við þurfum þess vegna að bregðast við með því að auka fjármuni til uppbyggingar og viðhalds á vegakerfinu og það er verið að gera.