132. löggjafarþing — 67. fundur,  15. feb. 2006.

Þróun skattprósentu.

454. mál
[15:25]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Frú forseti. Þetta er mikill brandari sem hér á sér stað í þingsölum. Hér dregur Sjálfstæðisflokkurinn greinilega upp einhvers konar potemkintjöld og reynir að halda því fram að skattar á Íslandi hafi lækkað.

Frú forseti. Má ég rifja það upp að það var Sjálfstæðisflokkurinn sem í fjármálaráðherratíð Ólafs Ragnars Grímssonar útnefndi hann sem skattmann Íslands. Síðan hefur það gerst að undir forustu núverandi formanns Sjálfstæðisflokksins stórjókst skattheimta af íslenskum borgurum þannig að skattmann Íslands, óumdeildur, er Geir H. Haarde.

Þegar þessir herrar tóku við var skatturinn sem lægstlaunaða fólkið þurfti að greiða af tekjum sínum 2–3%. Í dag er það 12–14%. Lægst launaða fólkið borgar hlutfallslega sex- til sjöfalt meira í dag en þegar þessi ríkisstjórn tók við. Auðvitað er það brandari þegar hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins setja svona leikrit á svið.