132. löggjafarþing — 68. fundur,  15. feb. 2006.

Tenging Sundabrautar við Grafarvog.

[15:34]
Hlusta

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ástæða þess að ég bað um þessa utandagskrárumræðu er einfaldlega sú að hér er um afskaplega mikilvægt verkefni að ræða, þ.e. lagningu Sundabrautar. Ég hef komið að stjórnmálum í ansi langan tíma, a.m.k. miðað við lífaldur. (Gripið fram í.) Ég heyri að hv. þm. Kristján L. Möller segir að ég hefði betur verið lengur í þeim því honum finnst gott og gaman að hafa mig á þessum vettvangi, en það er kannski ekki efni málsins. Ástæðan er sú að menn hafa rætt Sundabrautina í gott betur en áratug og þó að nokkuð hafi mjakast (Gripið fram í.) í málinu liggur fyrir að við erum ekki búin að klára það verkefni. Ég neita því ekki að ég hef nokkrar áhyggjur af því hversu hægt gengur.

Það er alveg ljóst og hv. þm. Össur Skarphéðinsson þekkir það vel enda hefur hann horft upp á ýmislegt í þessu, að samgöngumál í Reykjavíkurborg og á höfuðborgarsvæðinu eru mjög mikilvæg og tengjast öllum landsmönnum. Við sem búum austarlega í borginni þekkjum það að umferðin er mjög þung þegar menn fara vestur í bæ, leið sem margir keyra til vinnu, sérstaklega á álagstímum. Þetta mun bara aukast. Það liggur fyrir með þeirri hefðbundnu fjölgun, hvort sem það er myndarleg uppbygging í Mosfellsbæ, á Suðurlandi eða Vesturlandi, og ég tala ekki um ef menn — sem ég trúi ekki fyrr en ég tek á því — ætla í fullri alvöru að flytja 15–20 þús. manns í Úlfarsfell. Það liggur fyrir að það er ekki nokkur leið að koma fólki til og frá þar. Það mál kemur öllum landsmönnum við, sérstaklega þeim sem búa í Reykjavík og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu.

Eins og ég sagði hefur þetta gengið, að mínu áliti, of hægt. Hins vegar verður náttúrlega að segja eins og er að það er afskaplega ánægjulegt að sjá að ríkisvaldið hefur gengið á undan og tryggt fjármögnun fyrir þessa dýru framkvæmd. Það er nokkuð sem liggur fyrir. Hins vegar er ekki nóg að tryggja fjármagn, það þarf að fara í framkvæmdina. Eins og staðan er í dag þarf að taka ákvarðanir um ýmislegt sem þessu tengist. Þar er í mörg horn að líta. Það eitt og sér að leggja Sundabrautina mun ekki leysa mikinn umferðarvanda eins og staðan er í dag. Ýmislegt fleira þarf að koma til sem að vísu er ekki í verkahring okkar alþingismanna. Koma þarf betri nýting á umferðarmannvirki í Reykjavíkurborg. Það er til lítils að ræða það hér, nema kannski í hliðarsölum við aðila sem gætu haft áhrif á það. Það skiptir líka máli að tengingar og þar sem brautin fer um sé gert í sem mestu samráði við íbúana og að það komi sem best út fyrir alla íbúa borgarinnar, hvar sem þeir eru.

Það skiptir mjög miklu máli hvar tengingarnar eru og hvar þær verða. Íbúar á nokkrum stöðum í borginni hafa haft áhyggjur af þessu og komið fram með sín sjónarmið. Ég held að mikilvægt sé að við vinnum hratt og örugglega í málinu og tökum tillit til málefnalegra raka í því þannig að sem allra best sátt náist um málið og að sömuleiðis verði sem fyrst af framkvæmdinni því það er engin ástæða til að bíða lengur með þetta. Það þarf bara að ná niðurstöðu.

Fyrrverandi borgarstjóri sagði á hverfafundi í Grafarvogi árið 2000 að samkvæmt samkomulagi milli borgarstjóra og samgönguráðherra yrði gerð skýrsla um umhverfismat þá um sumarið, þ.e. að leiðirnar yrðu bornar saman og fljótlega um haustið yrði tekin ákvörðun um eina lausn og ef allt gengi að óskum ættu framkvæmdir að geta hafist næsta ár. Það var sem sagt 2001.

Nú, mörgum árum seinna er samt sem áður ekki lengra komið en raun ber vitni. En nú er tækifærið og við eigum að nýta það. Við eigum ekki að karpa um þessi mál, heldur eigum við að reyna að ná sem víðtækastri sátt um það. Þetta er ekki bara hagsmunamál Reykvíkinga heldur landsmanna allra. Við þekkjum það að oft og tíðum er farið í alls kyns samráðsferli og vinnu til að ná sátt um samgöngumannvirki eins og þessi og við eigum að vinna hratt og örugglega að því.

Þar sem hæstv. samgönguráðherra er einn aðili að málinu og mikill áhugamaður um gerð Sundabrautar ætla ég að spyrja hann þriggja spurninga:

1. Hver er staða verkefnisins „lagning Sundabrautar“?

2. Telur ráðherra koma til greina (Forseti hringir.) að færa brautina út fyrir Hamarinn í Hamrahverfi?

3. Hvernig hugnast ráðherra að taka tillit til vel rökstuddra athugasemda íbúa sem lúta að færslu Hallsvegar frá Hamrahverfi?