132. löggjafarþing — 68. fundur,  15. feb. 2006.

Tenging Sundabrautar við Grafarvog.

[15:47]
Hlusta

Hlynur Hallsson (Vg):

Frú forseti. Það er skemmtilegt að fá tækifæri til þess að vera mættur hér á nokkurs konar borgarstjórnarfund þar sem verið er að ræða umferðarmál í Reykjavík, nefnilega tengingu Sundabrautar við Grafarvog. Ég skil auðvitað áhyggjur hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, íbúa í Grafarvogi, ef ég skil rétt, af því að þessu máli hefur ekki verið hraðað. Þar er við hæstv. samgönguráðherra að sakast. Eins og kom fram í máli hv. þm. Helga Hjörvars hefur þessi umræða staðið árum saman og einhver kergja er á milli hæstv. samgönguráðherra og borgarstjórnarmeirihlutans en þá sögu þekkir hv. fyrirspyrjandi manna best.

Það efast enginn um að það er mikilvægt að hafa samráð við íbúana og það er ánægjulegt að það sé þó komið fjármagn í fyrri áfangann. En það ber að skoða allar leiðir mjög vel og ýmsar hugmyndir eru uppi um þetta. En þetta er dálítið fyndin utandagskrárumræða á þessum ágæta degi.