132. löggjafarþing — 69. fundur,  16. feb. 2006.

Sveitarstjórnarmál.

407. mál
[11:00]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil láta þess getið í upphafi máls að við í Frjálslynda flokknum ásamt vinstri grænum óskuðum sérstaklega eftir því að koma að starfi sameiningarnefndar á sínum tíma. Í ljósi þess sem hæstv. ráðherra endaði ræðu sína á að nauðsynlegt væri að allir kæmu að því starfi og öll sjónarmið fengju að koma fram varðandi þessi mál, verð ég að segja og lýsa því yfir enn á ný, eins og við reyndar gerðum margítrekað við félagsmálaráðuneytið, að við söknuðum þess mjög að fá ekki aðkomu að þessu starfi sameiningarnefndarinnar. Og hefðum þar af leiðandi getað lagt það að mörkum sem við höfðum afl til og tekið þátt í störfunum.

Þetta vildi ég láta koma fram og sérstaklega í ljósi þess að hér var talað um aukið lýðræði o.s.frv.