Sveitarstjórnarmál.
Hæstv. forseti. Ég fagna því ef hæstv. ráðherra hefur séð að sér og mun standa öðruvísi að málum í framtíðinni en verið hefur í fortíðinni. Ég sé það hins vegar í skýrslunni á bls. 73, að ekki hefur vafist fyrir ráðuneytinu að skipta þrisvar sinnum um fulltrúa Samfylkingarinnar í nefndinni. (Gripið fram í.) Það getur vel verið, en ég hygg að síðasti maðurinn hafi sennilega verið sá besti. En það er nú þannig, hæstv. forseti, að við teljum, þó að við séum í minnstu flokkunum á Alþingi, að sjónarmið okkar eigi að fá að koma fram í umræðunni og hefði átt að koma fram í nefndarstarfinu. Það er þess vegna sem ég geri þessa athugasemd, ekki vegna þess að skýrslan sé slæm. Ég tel að hún sé mjög góð og kem að því síðar í máli mínu í dag.