132. löggjafarþing — 69. fundur,  16. feb. 2006.

Sveitarstjórnarmál.

407. mál
[11:07]
Hlusta

félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er alveg hárrétt sem hv. þm. Einar Már Sigurðarson rekur hér. Að best hefur gengið á þeirri leið að sameina sveitarfélögin, að stækka þau og efla einmitt í kjölfar þeirra sameiningarátaka sem ríki og sveitarfélög hafa tekið höndum saman um í tvígang. Fyrst í tíð forvera míns, hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, og svo aftur erum við að sjá þá þróun eiga sér stað núna, að þrátt fyrir að íbúar hafni þeim sameiningartillögum sem settar eru fram, ekki af hálfu ríkisins, heldur af hálfu þess samstarfs sem menn hafa átt með sér, hafna íbúar þeim tillögum en ganga síðan til sameiningar sveitarfélaganna með öðrum hætti. Með þeim hætti sem þeir helst kjósa sjálfir. Það er auðvitað ekkert nema gott eitt um það að segja, hæstv. forseti.

Varðandi verkefnaflutninginn er ég þeirra skoðunar, eins og fram hefur komið við umræðuna, að okkur beri að leita leiða til að færa fleiri og verðugri verkefni til sveitarfélaganna en til þess verða þau að vera nægilega burðug og öflug til að taka við þeim. Það er mergurinn málsins, hæstv. forseti.