Sveitarstjórnarmál.
Frú forseti. Ég vil halda til haga þeirri skoðun sem ég hef og við þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, að það er réttur íbúanna til þjónustu, hvort sem hann er síðan veittur af ríki eða sveitarfélagi, þessi sameiginlega opinbera þjónusta sem við eigum að horfa á í einu lagi og hvernig því verði þá sem haganlegast fyrir komið. En ekki að horfa á þetta sem tvo aðskilda kassa, ríki og sveitarfélög. Þegar verið er að færa verkefni til sveitarfélaganna eða verkefnaflokkar sveitarfélaganna að vaxa þarf náttúrlega að færa þangað tekjustofna. En það hefur ekki verið gert. Sögð hafa verið mörg orð, skrifaðar margar skýrslur, settar margar nefndir, en fjármagnið hefur ekki fylgt. Þar liggur vandinn. Tökum t.d. Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem átti vera til að jafna tekjumun sveitarfélaga. Hann rennur núna til allra sveitarfélaganna. Öll sveitarfélögin, held ég, eða langflest eru að fá framlög úr jöfnunarsjóði. Líka þessi stóru, sterku og ríku (Forseti hringir.) sem hæstv. ráðherra ber fyrir brjósti.