132. löggjafarþing — 69. fundur,  16. feb. 2006.

Sveitarstjórnarmál.

407. mál
[11:13]
Hlusta

Þuríður Backman (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. félagsmálaráðherra fyrir að fara yfir skýrsluna og flytja hana hér. En ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi ekki áhyggjur af þeirri íbúaþróun sem verið hefur, og þá sérstaklega undanfarna áratugi, yfir landið allt, fjölgun á höfuðborgarsvæðinu andspænis landinu í heild. Sá fjöldi íbúa sem býr núna hér á tiltölulega litlu svæði. Ég spyr að þessu með tilliti til búsetu á landinu öllu, varðveislu menningarverðmæta og nýtingu náttúruauðlinda, bæði til lands og sjávar.