132. löggjafarþing — 69. fundur,  16. feb. 2006.

Sveitarstjórnarmál.

407. mál
[12:04]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja að þakka fyrir þá skýrslu sem við ræðum. Ég vék reyndar aðeins að því í andsvari í morgun að mér finnst skýrslan mjög góð og fróðleg og held að það væri afar þarft fyrir þá sem á annað borð hafa áhuga á pólitík og sveitarstjórnarmálum að lesa skýrsluna vel og vandlega í rólegheitum. Í henni er ýmis fróðleikur og mjög margt sem hægt er að velta fyrir sér og spyrja um. Við nákvæma lesningu held ég að fólk fái verulega betri sýn á sveitarstjórnarmálin. Þess vegna vil ég þakka hæstv. félagsmálaráðherra fyrir að hafa látið vinna skýrsluna og setja hana fram á aðgengilegan hátt. Uppsetningin gerir það að verkum að hægt er að fá betri og skýrari sýn á margt. Ég held að margir mættu taka sér það til fyrir fyrirmyndar í þeim skýrslum sem hér eru lagðar fram að setja þær fram á jafnskilmerkilegan hátt og gert er í þessari skýrslu.

Ég vil samt sem áður láta þess getið sem ég vék að í andsvari í morgun að við söknuðum þess í Frjálslynda flokknum að fá ekki að taka þátt í því starfi sem unnið var í sameiningarnefndinni og heyra hin ólíku viðhorf sem þar hafa vafalaust komið fram og rökræður um sveitarstjórnarmálin. Þess meira virði er auðvitað skýrslan fyrir okkur sem ekki tókum þátt í því starfi og kynntumst því ekki frá þeirri hendi og þeirri hlið. Miðað við orð hæstv. ráðherra í morgun vænti ég þess, sérstaklega í ljósi þess sem stendur neðst á fyrstu síðu í skýrslunni. En þar segir þegar verið er að ræða um þekkingu og hugmyndir, með leyfi forseta:

„Til þess að ná þessum markmiðum þarf að eiga sér stað opinská umræða um málefni ríkis og sveitarfélaga í heild sinni og leita sameiginlegra lausna. Í slíkri umræðu er nauðsynlegt að allir sem málið varðar séu opnir fyrir nýjum hugmyndum ...“

Hæstv. ráðherra. Það er ekki víst að hugmyndir okkar fari saman að öllu leyti en það er yfirleitt þannig í nefndarstarfi að menn koma með sínar hugmyndir og leggja fram það besta sem þeir hafa vit á og ýmist taka rökum eða halda fram sínum rökum. Ég hygg að þannig hefði það verið, hæstv. ráðherra, og ég vænti þess að það megi líta svo á, eins og segir hér í framhaldi af því sem ég vitnaði í, með leyfi forseta: „ef slíkt er skynsamlegt út frá hagsmunum borgaranna.“

Ég vænti þess að það teljist skynsamlegt út frá hagsmunum borgaranna að leyfa okkur að vera með í mikilvægu nefndarstarfi, því ég tel að starfið sem fram hefur farið sé mjög mikilvægt fyrir þróun sveitarstjórnarstigsins og skipulag íslensks þjóðfélags í framtíðinni. Ég er einn af þeim sem eru hlynntir því að fleiri verkefni komi til sveitarfélaganna og þó svo að sá áfangi sem stefnt var að í vor um að sveitarfélögin yrðu komin niður í 66, ef ég man rétt, hafi ekki náðst sýnist mér samt að þegar upp verður staðið, þegar mönnum hefur gefist ráðrúm til þess að skoða stöðu og starfshætti sveitarfélaganna muni sveitarfélögunum enn fækka og þau muni þar af leiðandi stækka og verða öflugri.

Ég held að það sé mjög góð þróun. Við Íslendingar þurfum ekki að færast undan því að það hafi gengið hægt að sameina sveitarfélög og stækka enda voru þau tæplega 220 árið 1986. Ef þau verða orðin 80, eins og hæstv. ráðherra gat um í morgun, eftir sveitarstjórnarkosningar í vor held ég að menn þurfi ekki að tala um að það hafi ekki á þessum tveimur áratugum orðið veruleg breyting varðandi sveitarfélagafyrirkomulagið á Íslandi og að sveitarfélögum hafi fækkað og þau muni stækka á komandi árum. Hvort talan eigi að vera 43, eins og mig minnir að hafi verið í áætlun hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur, eða 66, eins og mig minnir að sé í skýrslunni læt ég liggja á milli hluta. Það er kannski ekki aðalatriðið hversu mörg sveitarfélögin verða að lokum heldur fyrst og fremst að þau sveitarfélög sem eru starfandi hafi fundið sér farveg til þess að leysa þau verkefni sem þeim eru falin, hvort sem þau hafa gert það með sameiningarferli eða með því að semja sín á milli um að ákveðin verkefni skuli unnin sameiginlega af sveitarfélögunum, sem ég held að geti einnig verið mjög æskilegur kostur og sé óþarft að gera lítið úr, að sveitarfélögin geti leyst mörg af verkefnum sínum með því að sameinast um lausn þeirra án þess að um sameiningu hafi beinlínis orðið að ræða. Hins vegar held ég að það sé mjög líklegt að þegar sveitarfélög hafa um langa hríð sameinast um að leysa verkefni sameiginlega muni það, ásamt ýmsum breytingum í okkar þjóðfélagi, t.d. bættum samgöngum, leiða til þess að sveitarfélögin muni sameinast og stækka verulega. Ég hygg að þannig verði það í framtíðinni.

Það hafa verið átök um tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og kannski hefur það haft áhrif á sameiningarferlið sem menn fóru af stað með. Alla vega fannst sumum sveitarstjórnarmönnum reynslan við yfirtöku grunnskólanna nokkuð erfið. Ég hygg að það sé komin nokkuð góð sátt í það mál í dag en sumum fannst ekki fylgja því nægilegir fjármunir í upphafi. Ég skal ekki fullyrða hvort það hafi verið algjörlega réttmæt gagnrýni en þannig kom það alla vega að mörgum sveitarstjórnarmanninum og sumum sveitarstjórnum. Ég hygg hins vegar, eins og málum er komið nú, að menn séu orðnir nokkuð sáttir við þá vegferð eftir þær lagfæringar sem orðið hafa varðandi grunnskólann.

Það setur kannski svolitla varfærni í menn að taka við nýjum verkefnum sem auðvitað kalla þá á nýja tekjustofna. Þá vilja menn hafa það fastar í hendi hvað verkefnin kosta og hvaða breytingar gætu hugsanlegar orðið við að sveitarfélögin tækju við þeim. Við vissum að kostnaður varðandi grunnskólana mundi aukast, sérstaklega þar sem kjaramál kennara voru eins og þau voru þegar grunnskólinn var færður yfir til sveitarfélaganna. Þar að auki hafa sveitarfélögin viljað gera vel í rekstri grunnskólanna, hafa viljað efla þá. Þar af leiðandi hafa menn kannski freistast til að setja meiri fjármuni í reksturinn en áður. Ég held að það sé af hinu góða vegna þess að þar eru sveitarfélögin að reyna að uppfylla það sem er þeirra skylda, að hafa þjónustuna góða, efla hana og standa vel að grunnmenntun í landinu. Því ber að fagna að mönnum hafi tekist vel upp í þeim efnum sem ég tel að sé.

Ég tel að sveitarfélögin eigi að fá til sín fleiri verkefni á komandi árum og þá tilfærslu eigi að þróa m.a. með því að sveitarfélögin taki að sér reynsluverkefni. Slíkt hefur verið við lýði á undanförnum árum og vafalaust er komin reynsla af nokkrum verkefnum sem sveitarfélögin hafa verið að reka á sínum vegum með samningum við ríkið og reynslufyrirkomulagi. Þannig held ég að við þurfum að þróa þessa vinnu, veita þarf sveitarfélögunum tækifæri til að takast á við ný verkefni og finna út úr því hvaða tekjustofnar eiga að fylgja og að viðeigandi tekjur fylgi hverjum málaflokki.

Ég hygg að menn vilji stefna að því. Mér heyrðist á máli hæstv. ráðherra í morgun að hann teldi að reynslusveitarfélögin og verkefni sem sveitarfélögin tækju að sér væru einmitt til þess að slík þróun ætti sér stað áfram inn í framtíðina. Ég hef skilið það svo að hæstv. ráðherra væri mjög áfram um að fleiri verkefni færu til sveitarfélaganna á komandi árum og áratugum.

Ég vil skjóta því inn hér að ég tel að sameining sveitarfélaga eigi ekki að vera neitt trúaratriði, eins og ég vék að, hægt sé að leysa ýmis mál sveitarfélaga með samstarfi um verkefni og lausnir, að viðfangsefnin og umsýslan hjá sveitarfélögunum geti verið góð og slíkt samstarf eigi að geta jafngilt því að menn séu tilbúnir að taka að sér verkefni frá ríkinu til minni sveitarfélaganna. Auðvitað eru hin stærri og öflugri sveitarfélög miklu betur í stakk búin til þess að taka við hinum ýmsu verkefnum sem við hugsanlega vildum koma til sveitarfélaganna. Þar er af mörgu að taka. Ég tel að erfiðar samgöngur í sumum landshlutum séu takmarkandi á samstarf og sameiningu sveitarfélaga. Ég nefni t.d. bara Vestfirði, sem gætu hugsanlega með fullkomnum framtíðarsamgöngum verið eitt sveitarfélag, alla vega frá Djúpi og vestur að Barðaströnd. Það byggir auðvitað á því að menn komist undir fjöllin og þurfi ekki að fara yfir þau. Vonandi verður akstursleiðin frá Ísafirði til Vesturbyggðar ekki mikið lengri en ein klukkustund eða eitthvað slíkt á komandi árum. Ég tel að það eigi að geta tekist með varanlegum lausnum.

Við höfum talað fyrir því í Frjálslynda flokknum að horfa til þess inn í framtíðina að koma helstu þjóðvegaleiðum landsins og samgönguæðum milli svæða, landsvæða og byggða, á svokallaða láglendisvegi með markvissri áætlun um jarðgangagerð þar sem það á við. Ég hygg að sífellt fleiri séu að komast á þá skoðun að það sé rétt að horfa þannig á málin. Alveg er ég viss um það t.d. að Reyðfirðingar og Fáskrúðsfirðingar eru sammála þeirri skoðun eftir að hafa upplifað að keyra í gegnum hin nýju jarðgöng milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Þannig er það auðvitað hvar sem er á landinu þar sem menn hafa kynnst því að klifra yfir fjöll eða vera utan í hættulegum skriðum og fara síðan í jarðgöng sem eru fær allan ársins hring og hafa sýnt sig að vera mikil umferðaröryggisbót.

Varðandi ný verkefni hygg ég að málefni fatlaðra geti m.a. farið til sveitarfélaganna, jafnvel hluti af heilsugæslunni. Ég hef einu sinni nefnt hér í ræðu hluta af samgöngum, þ.e. samgöngum innan nýrra sveitarfélaga. Þá er ég ekki að tala um nýlagningu vega heldur viðhald, snjómokstur og annað sem tengist því að fært sé á milli staða.

Varðandi tekjustofnana held ég að finna þurfi nýja tekjustofna fyrir sveitarfélögin og horfa til tekjustofna sem eru sjálfkrafa rennandi, ef hægt er að segja sem svo, t.d. hluti af virðisaukaskatti eða öðrum gjöldum. Einnig er hægt að skoða fleira og kem ég kannski að því síðar.