Aðbúnaður aldraðra sem bíða eftir útskrift á LSH.
Virðulegi forseti. Ég vil hefja mál mitt á því að þakka hv. þm. Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur fyrir að taka þetta mál til umræðu á Alþingi. Góð þjónusta við aldraða á að vera einn af hornsteinum velferðarsamfélags okkar. Vissulega er öldruðum veitt margs konar þjónusta en þó er margt sem betur má fara. Við í Frjálslynda flokknum höfum ávallt lagt áherslu á að sjónarmið eldri borgara séu virt þegar úrræða er leitað og að efla þurfi heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu til að gera þeim sem það kjósa kleift að búa heima sem lengst.
Virðulegi forseti. Af þeirri umræðu sem farið hefur fram hér í dag er ljóst að mikilvægt er að taka í notkun ný hjúkrunarrými til að leysa vanda þeirra sem bíða útskriftar á spítölum og eru í brýnni þörf fyrir hjúkrunarvist. Allt of margir sjúklingar dvelja á Landspítalanum. Læknismeðferð þeirra er lokið og þeir komast ekkert annað vegna skorts á hjúkrunarrýmum. Yfirstjórn öldrunarmála er ekki á einni hendi hér á landi og þessi málaflokkur er að sumu leyti dæmigerður fyrir verkaskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga þar sem framkvæmd verkefna skarast iðulega. Ríkið tekur til að mynda sjúkrahúsin og á vegum sveitarfélaga er víðast boðið upp á félagsstarf, heimsendingu á mat, aðstoð við heimilishald auk margvíslegrar annarrar félagsþjónustu. Þessi þjónusta léttir undir með fólki, eykur öryggiskennd og gerir fólki kleift að búa lengur í heimahúsum en ella væri mögulegt. Það hefur líka verið hlutverk sveitarfélaga að reisa og reka hjúkrunarheimili en þau verða þó ekki reist nema með samþykki heilbrigðisráðuneytis, og þegar hjúkrunarheimilið er risið þarf rekstrarfé úr ríkissjóði og það hefur iðulega verið naumt skammtað. Þannig hefur rekstrarvandi sett mark sitt á starfsemi hjúkrunarheimila. Það er því ekki óeðlilegt að fólk hverfi til betur launaðra starfa sem bjóðast og allir vita að lág laun hafa valdið starfsmannaeklu og tíðum mannaskiptum á öldrunarstofnunum sem er óæskilegt þegar um svo viðkvæma starfsemi er að ræða.
Þó er rétt að geta þess að mikil hjálp hefur orðið með tilkomu erlends starfsfólks í þessar umönnunarstéttir (Forseti hringir.) því að það hefur reynst mjög vel. Það liggur ljóst fyrir að ekki er verður unnt að leysa þennan fjölþætta vanda nema með sameiginlegu átaki ríkis og sveitarfélaga.